Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 217 — 207. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um að hefja framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi.
Flm.: Þorgrímur Sigmundsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Karl Gauti Hjaltason.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tryggja að framkvæmdir við þjóðveg 939 yfir Öxi hefjist strax.
Greinargerð.
Hönnun nýs þjóðvegar yfir Öxi er tilbúin og því ekkert að vanbúnaði að auglýsa eftir tilboðum í verkið án frekari tafa.
Sveitarfélagið Múlaþing varð til árið 2020 þegar sveitarfélögin Djúpavogshreppur, Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstaður og Borgarfjarðarhreppur voru sameinuð. Talsverður þrýstingur hafði lengi verið uppi af hálfu stjórnvalda á Íslandi um að fækka einingum á stjórnsýslustigi og ýmislegt talið upp til að auka áhuga sveitarstjórna á því að stíga slík skref.
Undir þessum þrýstingi varð Múlaþing til. Bættar samgöngur í sveitarfélaginu voru ein af forsendum sameiningar og þar var Axarvegur settur á oddinn. Þjóðvegur nr. 939, Axarvegur, liggur um samnefnda heiði, Öxi, og er hann tenging frá hringveginum í Berufirði allt til Egilsstaða. Miðhluti vegarins yfir heiðina er brattur og þröngur og liggur 530–540 m yfir sjávarmáli. Umferð yfir Öxi er allt að 800 bílar á dag. Umferðin er því umtalsverð í samanburði við umferð á þjóðvegi 1 um Breiðdalsvík, Stöðvarfjörð og Fáskrúðsfjörð og það þrátt fyrir að Axarvegur sé þröngur malarvegur en þjóðvegur 1 lagður bundnu slitlagi.
Í febrúar árið 2022 bauð Vegagerðin til kynningarfundar þar sem kynntar voru áætlanir um útboð á vegi yfir Öxi. Var verkið kynnt sem „samvinnuverkefni“. Í 2. gr. laga um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir, nr. 80/2020, er orðið „samvinnuverkefni“ skilgreint svo: „Verkefni þar sem einkaaðili annast fjármögnun opinbers mannvirkis, í heild eða að hluta, eða tekur með öðrum hætti áhættu af gerð og rekstri þess, eftir atvikum með heimild til gjaldtöku fyrir notkun mannvirkisins á rekstrartíma.“ Í kynningargögnum Vegagerðarinnar kemur jafnframt fram að gert sé ráð fyrir því að lokaútboði verði skilað í janúar árið 2023.
Orð skulu standa. Tillaga þessi er lögð fram til að knýja á um að ríkisstjórnin standi við þær forsendur sem lágu til grundvallar sameiningu sveitarfélaga árið 2020.
Við skoðun á gögnum um fjölda ökutækja á sólarhring virðist vera meiri umferð yfir Öxi en marga aðra fjallvegi sem þó eru lagðir bundnu slitlagi og flestir í samræmi við nútímakröfur.
Þjóðvegurinn yfir Öxi hefur verið með allra versta móti á síðustu árum. Viðhaldi á þessum fjölfarna 18 km langa vegi hefur um árabil verið svo ábótavant að hann telst vart örugg samgönguleið nú á dögum. Umferð um Axarveg er orðin mikil. Í september árið 2025 þurfti að loka veginum tímabundið vegna þess að hann var orðinn afar slæmur og þoldi umferðina ekki.
Umferðartölur Vegagerðarinnar staðfesta að Axarvegur er fjölfarin samgönguleið þrátt fyrir að vera þröngur og illa viðhaldinn malarvegur. Í júlí árið 2026 fóru að meðaltali 656 ökutæki á sólarhring um Öxi og 569 í ágúst. Það jafngildir yfir 20 þúsund ökutækjum í júlí og tæplega 18 þúsund í ágúst. Umferð um Axarveg hefur jafnframt á einstökum dögum verið meiri en um þjóðveg 1 við Streitishvarf og það þrátt fyrir ólíka vegagerð og þjónustustig. Umfang umferðarinnar undirstrikar mikilvægi vegarins fyrir samgöngur á Austurlandi og brýna þörf fyrir öruggan og greiðfæran heilsársveg. Minna má á að Axarvegur er mikilvægur þáttur heilbrigðiskerfisins vegna skerðingar á heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Axarvegur er jafnframt mikil bót fyrir nema í Menntaskólanum á Egilsstöðum sem búsettir eru á Djúpavogi þar sem leiðin til Egilsstaða styttist um tæpa 70 km. Bættar samgöngur geta jafnframt aukið hagkvæmni útflutnings á laxi og öðrum vörum, m.a. um Egilsstaðaflugvöll og Seyðisfjarðarhöfn. Að klára þjóðveginn yfir Öxi er einnig í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum en með styttri leiðum minnkar mengun með minni orkunotkun bifreiða, gjaldeyrir sparast og færri kílómetrar kalla á dýrt og umfangsmikið viðhald.
Fyrir kemur að veðurfar og snjóalög á Öxi séu notuð til að draga úr notkunargildi og mikilvægi Axarvegar. Staðreyndin er hins vegar sú að fjallgarðar norðaustan við Öxi taka iðulega mestu úrkomuna úr veðraskilum sem koma inn yfir austanvert landið. Eru snjóalög því minni á Öxi. Snælína liggur mun ofar í Berufirði en norðar á Austurlandi vegna þess hversu sunnarlega fjörðurinn er og vegna þess að hann liggur sunnan við kaldan straum fyrir austan land. Lítil snjóalög á þessum slóðum eru því andstæð því sem gerist frá Loðmundarfirði í norðri til Reyðarfjarðar í suðri þar sem menn þekkja snjóflóð og aurskriður.
Í samantekt Samgöngustofu um umferðarslys á Íslandi fyrir tímabilið 2020–2024 var þjóðvegurinn yfir Öxi sá vegur þar sem flest slys verða miðað við umferð á vegum í dreifbýli. Sú niðurstaða undirstrikar mikilvægi þess að þörfin fyrir góðan og öruggan þjóðveg yfir Öxi með tryggu farsímasambandi er augljóslega til staðar.
Uppbygging heilsársvegar yfir Öxi samrýmist jafnframt markmiðum umferðaröryggisáætlunar stjórnvalda fyrir árin 2024–2038, sem unnin er í samstarfi innviðaráðuneytisins, Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og ríkislögreglustjóra. Í áætluninni er lögð áhersla á að öryggi sé í forgangi við skipulag, hönnun og gerð umferðarmannvirkja og að fækka alvarlegum slysum í umferðinni. Nýr Axarvegur myndi stuðla að þessum markmiðum með öruggari samgöngum á fjölfarinni leið milli byggðarlaga á Austurlandi.
Vilji íbúanna er skýr. Krafa síðustu ára er sú að gera verði betur. Til marks um það má vitna í bókun heimastjórnar Djúpavogs um Axarveg frá 4. september 2025:
„Sumarumferð á Öxi hefur aldrei verið meiri en í ár og hafa umferðarþyngstu dagar farið nálægt 1.000 bílum. Heimastjórn vill árétta fyrri bókanir um mikilvægi Axarvegar og að það sé nauðsynlegt að ráðist verði í framkvæmdir á heilsársvegi nú þegar. Umferð um Axarveg frá áramótum til ágústloka er nálægt 80 þúsund bílum þrátt fyrir að lítil sem engin vetrarþjónusta hafi verið á tímabilinu janúar til apríl. Umferðarþyngsti dagurinn taldi 880 bíla.
Meðalumferð frá 1. júní til 24. ágúst var 623 bílar. Aukning á umferð yfir Öxi á tveimur árum er yfir 35%. Marga daga er umferð yfir Öxi meiri en um þjóðveg 1 við Streitishvarf.
Heimastjórn sýnist það einsýnt að öllu lengur sé ekki hægt að bíða eftir framkvæmdum vegna síaukinnar umferðar og það sé ljóst að mjór og illa viðhaldinn malarvegur dugi ekki til að anna þessari umferð. Einnig vill heimastjórn árétta að viðhald sé í lágmarki og því vegurinn oft á köflum holóttur og erfiður yfirferðar en þrátt fyrir það sé hann að verða umferðarþyngsti vegurinn milli Djúpavogs og Mið-Austurlands og það kalli á tafarlausar úrbætur.“
Á vef Vegagerðarinnar er Axarvegur nefndur með yfirstandandi framkvæmdum þótt þær séu ekki hafnar. Ólíðandi er að draga það að hefja framkvæmdir við vandaðan veg sem eykur öryggi, styrkir byggðir og styttir akstursleið um 70 km og leysir jafnframt af hólmi hlykkjóttan og holóttan veg af svipuðum gæðum og þeir sem lagðir voru fyrir tæpri öld.
Hönnun vegarins er tilbúin og vegurinn á áætlun. Því telja flutningsmenn ekkert að vanbúnaði að hefja verkið.