Ferill 137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 218 — 137. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um reglugerð nr. 700/2026.
1. Fór reglugerð nr. 700/2026, um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, fyrir kostnaðarmatsnefnd ríkis og sveitarfélaga áður en hún var sett? Ef svo er ekki, af hverju var ekki farið eftir 129. gr. sveitarstjórnarlaga sem kveður á um að slíkt mat sé framkvæmt?
Samkvæmt 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, skal fara fram sérstakt mat á áhrifum á fjárhag sveitarfélaga þegar fyrirsjáanlegt er að stjórnvaldsfyrirmæli hafi fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög. Það er viðkomandi ráðherra sem ber ábyrgð á matinu, að það sé lagt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga til umsagnar og að það liggi fyrir áður en stjórnvaldsfyrirmælin eru endanlega ákveðin. Í framangreindu ákvæði er ekki gerð krafa um að stjórnvaldsfyrirmæli fari fyrir kostnaðarmatsnefnd ríkis og sveitarfélaga, enda er ekki starfrækt nefnd með því heiti. Hins vegar er starfrækt samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga á grundvelli 3. mgr. 128. gr. sveitarstjórnarlaga sem hefur yfirumsjón með formlegu samstarfi ríkis og sveitarfélaga, en skv. 129. gr. laganna er ekki gerð krafa um að kostnaðarmat sé lagt fyrir þá nefnd.
Það er afstaða ráðuneytisins að 129. gr. sveitarstjórnarlaga hafi verið fylgt við setningu reglugerðar nr. 700/2026, um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins. Reglugerðin byggist á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um börn með fjölþættan vanda. Með samkomulaginu tók ríkið að sér framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búa utan heimilis og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi. Samkvæmt samkomulaginu var gert ráð fyrir að breytt ábyrgðarskipting leiddi til þess að útgjöld sveitarfélaga lækkuðu um 3 milljarða kr. á ári. Sú fjárhæð byggist á ákveðnu kostnaðarmati sem á einkum rætur að rekja til skýrslu stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda frá 2023 og Áfangaskýrslu II um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk frá september 2024. Við undirbúning reglugerðarinnar var byggt á því kostnaðarmati sem lá til grundvallar samkomulaginu frá 19. mars 2025, sem Samband íslenskra sveitarfélaga undirritaði fyrir hönd sveitarfélaga. Fjárhagsleg áhrif þeirrar breyttu ábyrgðarskiptingar sem reglugerðin byggist á höfðu þegar verið metin og yfirfærsla þjónustunnar þegar samningsbundin. Því taldi ráðuneytið ekki tilefni til að framkvæma nýtt, sjálfstætt kostnaðarmat við setningu reglugerðarinnar.
2. Ef mat var framkvæmt, hvert var mat nefndarinnar á kostnaði sem situr eftir hjá sveitarfélögunum vegna þeirrar afmörkunar á hópi barna sem kveðið er á um í reglugerðinni?
Vísað er til svars við 1. tölul. um kostnaðarmatsnefnd ríkis og sveitarfélaga og samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga.
Áréttað er að samkomulag ríkis og sveitarfélaga sem vísað er til í 1. tölul. gerir ráð fyrir 3 milljarða kr. lækkun á útgjöldum sveitarfélaga vegna tilfærslu fjárhagslegrar ábyrgðar en ekki hefur verið lagt sérstakt mat á þann kostnað sem sveitarfélögin bera áfram.
3. Hvaða börn eru ekki lengur á ábyrgð ríkisins vegna nýrrar skilgreiningar í reglugerðinni?
Reglugerð nr. 700/2026 hefur ekki í för með sér að ábyrgð á búsetu barna fari af ábyrgð ríkisins yfir til sveitarfélaganna. Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. felur samkomulagið í sér að ríkið tekur að sér framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búa utan heimilis og hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu á þriðja stigi. Með reglugerðinni er sá hópur barna skilgreindur og flyst á ábyrgð ríkisins frá sveitarfélögunum. Þau börn sem uppfylla ekki skilyrði reglugerðar nr. 700/2026 eru áfram á ábyrgð sveitarfélaganna.
Rétt er að taka fram að skv. 12. gr. reglugerðarinnar helst ráðstöfun barns, sem sérfræðingateymið hafði fyrir gildistöku reglugerðarinnar metið í þörf fyrir þjónustu samkvæmt lögum nr. 38/2018 og búsetu utan heimilis á vegum sveitarfélags, óbreytt nema Barna- og fjölskyldustofa telji ástæðu til að taka mál þess til nýrrar meðferðar.
4. Hvaða kostnaður heyrir áfram undir eða færist aftur til sveitarfélaga vegna þessa? Hverju nemur sá kostnaður á ársgrundvelli?
Sveitarfélög bera áfram ábyrgð á lögbundinni þjónustu samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, barnaverndarlögum, nr. 80/2002, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, og eftir atvikum öðrum lögum. Þá bera sveitarfélög ábyrgð á að tryggja úrræði á fyrsta og öðru þjónustustigi og bera jafnframt kostnað vegna búsetu fatlaðra barna utan heimilis þegar sérfræðingateymi telur að börnin þurfi úrræði samkvæmt lögum nr. 38/2018 en uppfylli ekki öll skilyrði 3. gr. reglugerðar nr. 700/2026 fyrir vistun í sérhæfðu úrræði á vegum ríkisins.
Ekki liggur fyrir sérstakt mat á heildarfjárhæð framangreinds kostnaðar á ársgrundvelli en áréttað er að ráðuneytið telur þá ábyrgðarskiptingu sem hér er rakin til samræmis við fyrrgreint samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga og telur reglugerð nr. 700/2026 því ekki breyta ábyrgð ríkis eða sveitarfélaga á kostnaði frá því sem í samkomulaginu kemur fram.