Ferill 110. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 219 — 110. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Hildi Sverrisdóttur um auglýsingar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað hefur ráðuneytið varið miklu fé í auglýsingar á síðastliðnum fjórum árum? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, tegund auglýsingamiðils, hvort miðillinn telst til fjölmiðils eða samfélagsmiðils og hvort miðillinn er innlendur eða erlendur.
Á síðastliðnum fjórum árum hefur ráðuneytið varið 8.576.941 kr. í auglýsingar, ýmist í gegnum innlenda prentmiðla, vefmiðla og blandaða (hvort tveggja prent- og netmiðla) og erlenda prent-, vef- og samfélagsmiðla. Í meðfylgjandi yfirliti er að finna frekari upplýsingar um þessi útgjöld. Vakin er athygli á því að mikill meiri hluti auglýsinga sem birtar hafa verið á samfélagsmiðlum eru tengdar starfsemi sendiskrifstofa Íslands erlendis, t.d. auglýsingar um laus störf, útboð verkefna eða viðburði á vegum sendiskrifstofa.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.