Ferill 211. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 223 — 211. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um samrunatilkynningar til Samkeppniseftirlitsins.
Frá Hildi Sverrisdóttur.
1. Hver var fjöldi tilkynntra samruna til Samkeppniseftirlitsins á árunum 2015–2026 og hver voru afdrif málanna? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fjölda mála sem fóru í síðari rannsóknarfasa, fjölda mála sem lauk með skilyrðum eða íhlutunum, fjölda mála sem lauk með ógildingu og meðalmálsmeðferðartíma í hvorum fasa.
2. Hefur ráðuneytið látið greina hvað skýrir aukinn fjölda íhlutana Samkeppniseftirlitsins í samanburði við systurstofnanir á hinum Norðurlöndunum, m.a. með hliðsjón af veltumörkum tilkynningarskyldu?
3. Telur ráðherra þennan mun á íhlutunum eðlilegan eða telur ráðherra ástæðu til að bregðast við?
4. Hversu mörg samrunaáform hafa verið dregin til baka eða fallið niður án formlegrar ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins á hverju ári frá 2015–2026, þ.m.t. á stigi forviðræðna?
5. Hvaða andmælaréttar njóta fyrirtæki á stigi forviðræðna og liggja fyrir verklagsreglur um slíkar viðræður innan Samkeppniseftirlitsins?
6. Telur ráðherra það áhyggjuefni ef framkvæmd samrunaeftirlits stendur í vegi fyrir eðlilegum eigendaskiptum í minni rekstri? Ef svo er, telur ráðherra ástæðu til að bregðast við þeirri stöðu?
Skriflegt svar óskast.