Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 224 — 212. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um stöðu farsældarlaga.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hefur ráðuneytið greint eða metið stöðu á innleiðingu laga nr. 86/2021, um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna?
2. Telur ráðherra að niðurskurður til málaflokksins um 1,1 milljarð samræmist samkomulagi um að ríkið tryggi sveitarfélögum fjármagn meðan á innleiðingu laganna stendur í ljósi þess að mat ríkisendurskoðanda í stjórnsýsluúttekt frá júní 2026 er að innleiðingunni sé ekki lokið?
3. Hyggst ráðherra bregðast við þeim áhyggjum sem berast frá sveitarfélögum um að innleiðingarferlið sé sett í uppnám með þessum niðurskurði? Ef svo er, hvernig?
4. Hefur ráðuneytið brugðist við þeim ábendingum ríkisendurskoðanda sem er að finna í úttektinni? Ef svo er, hvernig?
Skriflegt svar óskast.