Ferill 213. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Prentað upp.

Þingskjal 225  —  213. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar


um fjármögnun á tækjakosti til bráðagreiningar á heilsugæslunni á Egilsstöðum.


Flm.: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Sigurður Örn Hilmarsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Diljá Mist Einarsdóttir, Ólafur Adolfsson, Bryndís Haraldsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að tryggja fjármuni til kaupa á nauðsynlegum tækjakosti fyrir heilsugæsluna á Egilsstöðum svo að þar sé hægt að bráðagreina til fulls heilsufar einstaklinga. Ráðherra geri Alþingi grein fyrir framgangi málsins á yfirstandandi löggjafarþingi.

Greinargerð.

    Tillaga þessa efnis var áður flutt á 152. löggjafarþingi ( 399. mál), 153. löggjafarþingi (147. mál) og 154. löggjafarþingi (54. mál) og er nú endurflutt óbreytt. Ein umsögn barst um málið á 153. löggjafarþingi frá Heilbrigðisstofnun Austurlands þar sem tillögunni var fagnað.
    Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að heilbrigðisráðherra verði falið að tryggja fjármagn til kaupa á nauðsynlegum greiningartækjum fyrir heilsugæsluna á Egilsstöðum til fullbráðagreiningar. Sjúklingum eru tryggð tiltekin réttindi í lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, m.a. um að allir sjúklingar eigi rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita. Á Egilsstöðum er alþjóðaflugvöllur/sjúkraflugvöllur en lengsta flugleið sjúkraflugs er frá Egilsstöðum til Reykjavíkur, um 400 km. Fjórðungssjúkrahúsið á Austurlandi er í Neskaupstað, um 68 km frá Egilsstöðum. Vegna bið- og ferðatíma sem fylgir sjúkraflugi til Reykjavíkur er mikilvægt að hægt sé að fullbráðagreina heilsufar á sem skemmstum tíma en skortur er á nauðsynlegum bráðagreiningartækjum á Egilsstöðum. Þar sárvantar sneiðmyndatæki og fleiri smærri tæki til að fullgreina stöðu heilsufars á sem skemmstum tíma.
    Niðurstaða starfshóps sem þáverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, setti á fót árið 2023 var að færa ætti heilsugæsluna á Egilsstöðum upp um aukið bráðaviðbragð til að tryggja bráðaþjónustu á svo dreifbýlu svæði. Aukið fjármagn fylgdi í kjölfarið til mönnunar og kaupa á smærri tækjakosti á heilsugæslunni á Egilsstöðum tengt auknu bráðaviðbragði. Enn í dag vantar fjármuni í kaup á stærri tækjakosti til að hægt sé að fullbráðagreina einstaklinga og hefja fljótt meðferð.
    Í dag þarf að keyra frá Egilsstöðum um 68 km leið á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað í fullbráðagreiningu og svo aftur til Egilsstaða í sjúkraflug. Fjórðungssjúkrahús eru vel tækjum búin, en sökum staðsetningar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað er lífsnauðsynlegt að tæki til fullbráðagreiningar sé einnig staðsett við sjúkraflugvöllinn á Egilsstöðum, sökum staðsetningar hans miðlægt á Austurlandi. Langt ferðalag einstaklinga í bráðafasa til greiningar getur lagt líf og heilsu þeirra í hættu. Oft fara þeir beint í sjúkraflug með óvissu um heilsufarsástand sem hefði þurft að bregðast strax við með lyfjum í kjölfar greiningar með tækjum sem vantar, til að tryggja líf þeirra og heilsu.
    Við innvortis blæðingar er einnig mikilvægt að komast að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu á sem skemmstum tíma. Sneiðmyndatæki greinir innvortis blæðingar sem geta orðið, t.d. vegna áverka, og við einkenni heilablæðingar er lykilatriði að greina blóðtappa til að lyfjagjöf megi fara fram til að leysa blóðtappann. Að koma blóðflæði aftur af stað þarf að gerast á sem skemmstum tíma frá upphafi einkenna svo að sjúklingur haldi lífi og lífsgæðum.
    Kaup á greiningartækjum á heilsugæsluna á Egilsstöðum er lífsspursmál fyrir íbúa á Austurlandi. Tækin spara tíma í greiningarferli og eru grundvöllur snemmtækra viðbragða sem auka líkurnar á að einstaklingar haldi lífi sínu og heilsu. Tækjakaupin munu líklega einnig leiða til sparnaðar, fækka sjúkraflugferðum vegna vissu um heilsufar og að ekki þurfi að kalla til sjúkraflug í sumum tilvikum fullbráðagreininga.