Ferill 218. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 231 — 218. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um málstefnu íslensks táknmáls.
Frá Söndru Sigurðardóttur.
1. Hvernig hefur innleiðingu málstefnu íslensks táknmáls miðað frá því að þingsályktun þess efnis var samþykkt 20. mars 2024?
2. Hvernig miðar framkvæmd þeirra aðgerða sem kveðið er á um í aðgerðaáætlun málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027? Hvaða aðgerðum, eftir því sem við á, er lokið, hvaða aðgerðir eru komnar til framkvæmda en er ólokið og hvaða aðgerðir eru óhafnar?
3. Eru einhver áform uppi um hvernig málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027 verður fylgt eftir þegar hún hefur runnið sitt skeið?
Skriflegt svar óskast.