Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 234  —  144. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Júlíusi Viggó Ólafssyni um atvinnumannahnefaleika.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver er afstaða ráðherra til þess að atvinnumannahnefaleikar verði heimilaðir á Íslandi, en ekki aðeins áhugamannahnefaleikar, að uppfylltum skilyrðum um öryggi iðkenda, eftirlit og umgjörð íþróttarinnar?
     2.      Hyggst ráðherra, sem ráðherra íþróttamála, beita sér fyrir því innan ríkisstjórnarinnar að lögum verði breytt þannig að heimilt verði að stunda atvinnumannahnefaleika hér á landi?


    Samkvæmt lögum um að banna hnefaleika, nr. 92/1956, er öll keppni, sýning og kennsla í hnefaleikum bönnuð, auk sölu og notkunar búnaðar til þjálfunar þeirra. Af lögskýringargögnum má ráða að meginástæður bannsins hafi verið heilsuverndarsjónarmið, einkum hætta á varanlegum höfuð- og heilaskaða, dauðsföll af völdum hnefaleika og það að endurtekin högg á höfuð væru eðlislægur hluti íþróttagreinarinnar. Með gildistöku laga um áhugamannahnefaleika, nr. 9/2002, var keppni, sýning og kennsla áhugamannahnefaleika heimiluð að uppfylltum reglum sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur. Bann samkvæmt lögum nr. 92/1956 gildir hins vegar óbreytt um atvinnumannahnefaleika.
    Nýlegar kerfisbundnar safngreiningar á meiðslum í bardagaíþróttum benda ótvírætt til þess að meiðslatíðni, einkum tíðni heilahristings og alvarlegra höfuðáverka, sé marktækt hærri í atvinnumannahnefaleikum en í áhugamannahnefaleikum og öðrum bardagaíþróttum. Skýrist sá munur m.a. af lengri viðureignum og uppsafnaðri áhættu yfir keppnisferil atvinnumanna. Þótt markvissar öryggisreglur, lækniseftirlit og tímabundin keppnisbönn dragi úr bráðri áhættu verður ekki séð að slík úrræði geti komið í veg fyrir þá áhættu sem fylgir endurteknum höggum á höfuð.
    Með hliðsjón af framangreindu, einkum áhættu á bráðum og langvinnum höfuð- og heilaskaða sem tengist atvinnumannahnefaleikum, er ráðherra ekki hlynntur því að atvinnumannahnefaleikar verði heimilaðir hér á landi. Ráðherra hefur því ekki í hyggju að beita sér fyrir breytingum á lögum sem heimila iðkun eða keppni í atvinnumannahnefaleikum.