Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 235  —  220. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um gagnsæi hagsmunagæslu og mat OECD.

Frá Degi B. Eggertssyni.


     1.      Hefur ráðuneytið tekið til skoðunar mat OECD á íslensku regluverki um hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum sem fram kemur í skýrslunni Anti-Corruption and Integrity Outlook 2026? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þeirrar skoðunar og hvaða umbóta telur ráðherra þörf?
     2.      Hefur framkvæmd ákvæða laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020, um skráningu hagsmunavarða, skráningu samskipta þeirra við stjórnvöld og birtingu upplýsinga verið metin? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þess mats?
     3.      Eru í undirbúningi frumvörp eða aðgerðir til að auka gagnsæi hagsmunagæslu, m.a. um skráningarskyldu, opinbera birtingu upplýsinga, eftirlit og viðurlög? Ef svo er, hvert er umfang aðgerða og hvenær er áætlað að þær komi til framkvæmda?
     4.      Hefur ráðherra í hyggju að leggja fram frumvarp til laga um sameiginlega, opinbera og leitarbæra skrá um hagsmunagæslu sem tengist einstökum þingmálum og öðrum opinberum ákvörðunum og nái til Stjórnarráðsins, Alþingis og sveitarfélaga?


Skriflegt svar óskast.