Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 239 — 124. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
1. Hvers vegna er aðeins hluti af framlagi ríkisins til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins innan fjármálaáætlunar, eða 34,2 milljarðar kr., en samkvæmt kynningu Betri samgangna fyrir fjárlaganefnd Alþingis er beint framlag ríkisins til sáttmálans 20% og önnur fjármögnun frá ríki 6%, eða samtals 81 milljarður kr., en 65 milljarðar kr. eiga að koma til greiðslu á árunum 2025–2040?
Í fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 er árlegt framlag til Betri samgangna 7,1 milljarður kr. eða 35,5 milljarðar kr. uppsafnað á tímabili áætlunarinnar. Þessar fjárhæðir eru verðbættar. Þar sem fjármálaáætlun tekur aðeins til fimm ára er þar ekki að finna fjárhæðir sem samkvæmt sáttmálanum koma til greiðslu eftir það tímamark. Samkvæmt framkvæmdaáætlun sáttmálans er heildarframlag ríkisins um 81 milljarður kr. á tímabilinu 2019–2040 á verðlagi ársins 2024.
2. Hefur Alþingi samþykkt þau fjárútlát sem ekki eru innan fjármálaáætlunar á annan hátt?
Fjármálaáætlun endurspeglar m.a. áform ríkisins sem fela í sér fjárútlát næstu fimm ár sem þurfa staðfestingu þingsins í fjárlögum fyrir hvert ár eigi þau að verða að veruleika.
3. Hvernig tengist samgöngusáttmálinn samgönguáætlun Alþingis? Er gert ráð fyrir skuldbindandi fjárframlagi af hálfu Alþingis í samgönguáætluninni?
Framlög ríkisins til samgöngusáttmálans tilheyra málefnasviði innviðaráðuneytis og eru hluti af samgönguáætlun sem er lögð fyrir Alþingi sem þingsályktunartillaga á fimm ára fresti að jafnaði.
4. Hvaða áhrif hefur þetta á fjármögnun verkefnisins á framkvæmdatíma?
Auk beinna framlaga frá eigendum er gert ráð fyrir því að verkefni samgöngusáttmálans verði fjármögnuð með ábata af sölu Keldnalands, sem ríkissjóður lagði til Betri samgangna, auk innheimtu flýti- og umferðargjalda frá árinu 2030. Þá hefur félagið heimild til lántöku ef það er metið hagkvæmt fyrir framgang verkefna. Þess vegna er ekki gert ráð fyrir því að það hafi áhrif á fjármögnun verkefnisins á framkvæmdatíma þótt hluti af framlagi ríkisins sé utan fjármálaáætlunar.
5. Leiðir þetta til verri fjármögnunarkjara og veldur þar með óvissu hvað framkvæmdina varðar?
Nei. Gert er ráð fyrir því að félagið taki lán úr ríkissjóði til að fjármagna framkvæmdir.
6. Hvers vegna er stór hluti af framlagi ríkisins undir liðnum „önnur fjármögnun frá ríki“ og hver er munurinn á „annarri fjármögnun frá ríki“ og „beinu framlagi frá ríki“?
Í upphaflega sáttmálanum frá árinu 2019 voru framlög ríkisins ákveðin og færð undir bein framlög ríkis í framkvæmdaáætlun. Við endurskoðun sáttmálans árið 2024 komu inn viðbótarframlög frá ríkinu árin 2025–2029 undir liðnum „Önnur fjármögnun ríkisins“ til að mæta auknum kostnaði við uppfærslu áætlana sáttmálans. Báðir liðir endurspegla framlög sem krefjast heimildar Alþingis í fjárlögum fyrir hvert ár.