Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 240  —  161. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um meðferð viðtalsbeiðna.


     1.      Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
    Alla jafnan veitir utanríkisráðherra íslenskum fjölmiðlum jafnt sem erlendum viðtöl þegar eftir því er leitað og svigrúm er til. Ekki er talin þörf á því að setja sérstakar vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna við fjölmiðla, enda beitir fjölmiðlafólk ýmsum leiðum, bæði formlegum sem óformlegum, til að koma viðtalsbeiðnum sínum á framfæri.

     2.      Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
    Ekki er haldin sérstök skrá yfir allar viðtalsbeiðnir til utanríkisráðherra, en þær skipta hundruðum á hverju ári. Dæmi eru um að viðtalsbeiðnum hafi verið hafnað sökum tímaskorts, t.d. í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst – en beiðnir voru yfir hundrað þann mánuðinn. Hér ræðir einkum um erlenda miðla en í einhverjum tilfellum einnig íslenska. Íslenskir fjölmiðlar hafa hins vegar afar gott aðgengi að utanríkisráðherra, til að mynda eftir ríkisstjórnarfundi.

     3.      Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
    Eins og kemur fram í svari við 2. tölul. er ekki haldin sérstök skrá yfir þær viðtalsbeiðnir sem utanríkisráðherra berast, enda berst stór hluti þeirra eftir óformlegum leiðum. En alla jafnan veitir ráðherra viðtöl þegar eftir því er leitað og svigrúm er í dagskránni, líkt og fyrr segir.