Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 241 — 223. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um þjónustu og viðhald malarvega í Norðausturkjördæmi.
Frá Þorgrími Sigmundssyni.
1. Hvernig er forgangsröðun þjónustu og viðhalds malarvega sem þjóna byggð og atvinnustarfsemi í Norðausturkjördæmi háttað?
2. Hversu oft voru malarvegir sem þjóna byggð og atvinnustarfsemi í Norðausturkjördæmi heflaðir árin 2020–2026? Svar óskast sundurliðað eftir vegum, vegflokkum og árum, sérstaklega hvað varðar vegi í Bárðardal, Útkinn, Laxárdal og Fnjóskadal, auk Staðarbakkavegar og Hörgárdalsvegar.
3. Telur ráðherra ástand og þjónustustig malarvega í Norðausturkjördæmi ásættanlegt með tilliti til umferðaröryggis, búsetuskilyrða og atvinnustarfsemi í kjördæminu?
4. Hvaða áform eru um endurbætur á malarvegum og lagningu bundins slitlags í Norðausturkjördæmi næstu fimm ár og hversu miklir fjármunir eru áætlaðir til framkvæmdanna?
Skriflegt svar óskast.