Ferill 225. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 243  —  225. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um Menntasjóð námsmanna.

Frá Degi B. Eggertssyni.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til helstu niðurstaðna skýrslunnar „Árangur eða afturför? Áhrif og afleiðingar nýrra laga um Menntasjóð námsmanna“, einkum þeirra sem lúta að jafnrétti til náms, þróun opinbers námsstuðnings, lánskjörum og samanburði við önnur norræn ríki?
     2.      Telur ráðherra að Menntasjóður námsmanna uppfylli lögbundið hlutverk sitt sem félagslegur jöfnunarsjóður sem stuðli að jöfnum tækifærum til náms óháð efnahag og félagslegri stöðu? Hvaða mat liggur fyrir á áhrifum kerfisins á ólíka hópa, m.a. námsmenn með takmarkað fjárhagslegt bakland, þá sem ekki geta búið í foreldrahúsum á námsárum, foreldra í námi og þá sem hefja nám síðar á ævinni?
     3.      Hver er staða boðaðrar heildarendurskoðunar laga um Menntasjóð námsmanna? Hvaða úrbætur eru helst til skoðunar, m.a. til að styrkja félagslegt hlutverk sjóðsins, auka sveigjanleika í námi og styðja við símenntun og endurmenntun? Hvernig er samráði við námsmenn og aðra hagaðila háttað og hvenær má vænta tillagna um frekari breytingar?


Skriflegt svar óskast.