Ferill 226. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 244  —  226. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um uppbyggingu bráðaviðbragðs og bráðaþjónustu á Austurlandi.

Frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur.


     1.      Hvernig metur ráðherra árangur þeirrar uppbyggingar sem ráðist hefur verið í til að efla bráðaviðbragð á Egilsstöðum?
     2.      Hefur ráðherra einhver áform um kaup á stærri greiningartækjum, m.a. sneiðmyndatæki, til að bæta greiningargetu og tryggja íbúum Austurlands gott aðgengi að bráðaþjónustu?
     3.      Mun ráðherra tryggja fjármögnun næsta áfanga uppbyggingar bráðaviðbragðs á Egilsstöðum, þar á meðal til kaupa á sneiðmyndatæki og uppsetningar nauðsynlegrar aðstöðu fyrir slíkt tæki?
     4.      Hvenær er áætlað að hægt verði að sinna fullnægjandi bráðagreiningu á Egilsstöðum, þar á meðal með notkun sneiðmyndatækis?


Skriflegt svar óskast.