Ferill 227. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 245 — 227. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um fjölgun hjúkrunarrýma á Egilsstöðum.
Frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur.
1. Hvernig telur ráðherra að fyrirhuguð fjölgun um tíu hjúkrunarrými á Austurlandi muni mæta núverandi þörf og til framtíðar fyrir hjúkrunarrými í landshlutanum?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að tryggja fjármögnun og framkvæmdir við fjölgun hjúkrunarrýma í Dyngju á Egilsstöðum með byggingu þriðju hæðar húsnæðisins? Ef svo er, hvenær er áætlað að framkvæmdir hefjist?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.