Ferill 228. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 246 — 228. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um gæðastjóra lögreglu.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
Hefur ráðherra skipað gæðastjóra lögreglu, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 28. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, sbr. 7. gr. laga nr. 95/2024? Ef svo er, hvenær átti sú skipun sér stað og hver hlaut skipun í embættið?
Skriflegt svar óskast.