Ferill 229. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 249 — 229. mál.
Beiðni um skýrslu
frá mennta- og barnamálaráðherra um rekstrarstöðu opinberra framhaldsskóla.
Frá Ingibjörgu Isaksen, Þórarni Inga Péturssyni, Sigurði Inga Jóhannssyni, Stefáni Vagni Stefánssyni, Höllu Hrund Logadóttur, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Jóni Gunnarssyni, Bryndísi Haraldsdóttur, Karli Gauta Hjaltasyni og Jens Garðari Helgasyni.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að mennta- og barnamálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um rekstrarstöðu opinberra framhaldsskóla, fjármögnun launakostnaðar og orsakir uppsafnaðs rekstrarhalla. Jafnframt verði fjallað um áhrif aðhaldsaðgerða og krafna um að vinna niður hallann á nám og þjónustu við nemendur.
Í skýrslunni komi eftirfarandi fram:
1. Þróun rekstrarstöðu og fjármögnunar. Yfirlit verði gefið um fjárheimildir, tekjur, gjöld, rekstrarafkomu og eigið fé einstakra skóla og skólanna í heild árin 2019–2025, ásamt áætlaðri afkomu ársins 2026. Sýnd verði þróun fjárveitinga á föstu verðlagi og á ársnemanda og greint á milli reglubundinna framlaga, tímabundinna framlaga, fjárfestingarframlaga og launa- og verðlagsbóta. Skýrðar verði helstu breytingar á eigin fé sem ekki verða raktar til rekstrarafkomu viðkomandi árs. Sérstaklega verði greint hvað skýri bætta rekstrarafkomu árið 2025 og hvort sá bati sé varanlegur.
2. Orsakir rekstrarvanda. Greindar verði helstu orsakir rekstrarhalla og neikvæðs eigin fjár skólanna, m.a. þróun launa- og húsnæðiskostnaðar, nemendafjölda, námsframboðs, mönnunar og stuðningsþarfa nemenda. Eftir því sem gögn leyfa verði greint á milli áhrifa ákvarðana skólastjórnenda og áhrifa fjármögnunar, skuldbindinga og annarra þátta sem þeir hafa takmarkað vald yfir.
3. Fjármögnun kjarasamninga og stofnanasamninga. Gerð verði grein fyrir því hvernig skólunum sé bættur kostnaður vegna miðlægra kjarasamninga og stofnanasamninga, hvaða skyldur hvíli á þeim um gerð stofnanasamninga og hvert samningssvigrúm skólastjórnenda sé. Metið verði hvort fjárveitingar hafi staðið undir kostnaði vegna þessara samninga á tímabilinu 2019–2025 og að hvaða marki mismunur kunni að skýra rekstrarhalla. Matið verði sundurliðað eftir skólum eftir því sem gögn leyfa, án tvítalningar kostnaðar.
4. Samræmi verkefna og fjármögnunar. Metið verði hvort fjárveitingar og reiknilíkan framhaldsskóla taki nægilegt tillit til nemendafjölda, tegundar náms, stærðar skóla, launakostnaðar og þjónustuþarfa nemenda. Fram komi hvort fjármögnun standi undir lögbundnum verkefnum og þeim kröfum sem stjórnvöld gera til námsframboðs og þjónustu.
Sérstaklega verði kannað hvort fjármögnun hafi fylgt fyrirmælum eða óskum ráðuneytisins um móttöku nemenda, uppbyggingu starfsbrauta, námsúrræði fyrir nemendur með íslensku sem annað mál og aukna nemendaþjónustu, m.a. vegna framkvæmdar farsældarlaganna. Gerð verði grein fyrir helstu fyrirmælum eða óskum af þessu tagi og metið hvort kostnaður vegna verkefnanna hafi átt þátt í uppsöfnuðum halla. Jafnframt verði gerð grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á reiknilíkaninu og áætluðum áhrifum þeirra.
5. Kröfur um að vinna niður uppsafnaðan halla. Yfirlit verði gefið um kröfur stjórnvalda til einstakra skóla um að vinna niður uppsafnaðan halla, fjárhæðir, tímaramma og forsendur. Fram komi hvort við ákvörðun krafnanna hafi verið tekið tillit til orsaka hallans, fyrri aðhaldsaðgerða og áhrifa á skólastarf.
Metið verði hvort skólarnir geti uppfyllt kröfurnar án skerðingar á kennslu og nauðsynlegri þjónustu. Sérstaklega verði fjallað um þann hluta hallans sem rekja má til skuldbindinga eða verkefna sem ekki voru að fullu fjármögnuð. Gerð verði grein fyrir öðrum leiðum til að mæta þeim vanda, þar á meðal sérstökum fjárveitingum eða endurskoðun krafnanna, ásamt kostnaði og áhrifum.
6. Aðhaldsaðgerðir, samrekstur og útvistun. Gerð verði grein fyrir fyrirhuguðum aðhaldsaðgerðum samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027 og fjármálaáætlun 2027–2031 og þeim fyrirmælum eða leiðbeiningum sem skólarnir hafa fengið um framkvæmd þeirra. Greint verði á milli beinna aðhaldskrafna og niðurfellingar tímabundinna framlaga.
Fjallað verði sérstaklega um áform um samrekstur þjónustu, flutning verkefna til sameiginlegra þjónustueininga og útvistun. Fram komi hvaða skólar og verkefni eigi í hlut, staða áformanna, tengsl þeirra við fyrri hugmyndir um sameiningu skóla og hvernig samráði við skólana sé háttað.
Tilgreindur verði áætlaður sparnaður helstu aðgerða að teknu tilliti til framkvæmdakostnaðar, tímasetningar og hvort sparnaðurinn sé tímabundinn eða varanlegur. Metin verði áhrif á starfsfólk, sjálfstæði skóla og þjónustu, svo og hvort kostnaður færist til nemenda, fjölskyldna eða annarra opinberra aðila.
7. Áhrif á námsárangur, námsframboð og þjónustu. Yfirlit verði gefið um helstu breytingar á námsframboði, mönnun og stuðningsþjónustu árin 2019–2026 sem rekja má til fjárhagsstöðu eða aðhalds. Jafnframt verði metin samanlögð áhrif fyrirhugaðs aðhalds og krafna um að vinna niður uppsafnaðan halla.
Matið nái m.a. til framboðs námsbrauta og áfanga, stærðar námshópa, bókasafnsþjónustu, náms- og starfsráðgjafar og annarra stuðningsúrræða. Sérstaklega verði fjallað um nemendur með fötlun, nemendur með annað móðurmál en íslensku og aðra sem þurfa aukinn stuðning. Eftir því sem gögn leyfa verði metin áhrif á námsframvindu, námslok og brotthvarf, svo og munur eftir skólum og landshlutum.
Sérstaklega verði metið hvort og hvernig fjárhagsþrengingar og aðhaldsaðgerðir hafi haft áhrif á námsárangur, námsframvindu, námslok og brotthvarf nemenda og hver áhrif fyrirhugaðra aðgerða kunni að verða. Við matið verði tekið mið af breytingum á nemendahópnum og öðrum þáttum sem geta haft áhrif á niðurstöðurnar. Greint verði eftir skólum, nemendahópum og landshlutum eftir því sem gögn leyfa.
8. Þjónusta sem á að tryggja og leiðir til úrbóta. Gerð verði grein fyrir því hvaða námsframboð og þjónustu stjórnvöld hyggjast tryggja þrátt fyrir aðhald og hvernig fylgst verði með gæðum náms og aðgengi að þjónustu. Metnar verði helstu leiðir til að bæta rekstrarstöðu skólanna og tryggja að fjármögnun samræmist verkefnum þeirra og markmiðum laga um framhaldsskóla. Fram komi hvaða úrbætur séu fyrirhugaðar, tímasetningar þeirra og ábyrgð á framkvæmd.
Skýrslan verði unnin í samráði við skólastjórnendur og fulltrúa starfsfólks og nemenda. Upplýsingar verði sundurliðaðar eftir skólum og árum eftir því sem við á. Þar sem gögn skortir eða ekki er unnt að aðgreina einstaka kostnaðarþætti verði það tekið fram og takmarkanir greiningarinnar skýrðar.
Greinargerð.
Samantektin sýnir jafnframt verulegan bata árið 2025. Samanlögð rekstrarafkoma var þá jákvæð upp á 563 millj. kr., samanborið við 634 millj. kr. halla árið áður. Sex skólar voru reknir með halla árið 2025 en 12 voru enn með neikvætt eigið fé. Samanlagt eigið fé skólanna var neikvætt um sem svaraði 419 millj. kr. í árslok.
Þessi bati er jákvæður en ársreikningstölurnar einar sýna ekki hvað liggur að baki honum eða hvort hann sé varanlegur. Greina þarf hvort afkoman hafi batnað vegna aukinnar fjármögnunar, tímabundinna framlaga, hagræðingar eða skerðingar á námsframboði og þjónustu. Jafnframt þarf að skýra breytingar á eigin fé sem ekki verða raktar til rekstrarafkomu viðkomandi árs.
Kjarni málsins er hvort samræmi sé milli fjármögnunar skólanna og þeirra verkefna og skuldbindinga sem þeim er ætlað að standa undir. Þar skiptir sérstaklega máli hvernig kostnaði vegna miðlægra kjarasamninga og stofnanasamninga er mætt. Jafnframt þarf að kanna hvort fullnægjandi fjármögnun hafi fylgt auknum kröfum um móttöku nemenda, uppbyggingu starfsbrauta, úrræði fyrir nemendur með íslensku sem annað mál og aukna stuðningsþjónustu.
Skólastjórnendur bera ábyrgð á rekstri innan fjárheimilda. Til að leggja málefnalegt mat á rekstrarvanda skólanna þarf þó að greina á milli ákvarðana sem þeir geta haft áhrif á og skuldbindinga eða verkefna sem stjórnvöld ákveða. Sú greining þarf einnig að liggja til grundvallar kröfum um að vinna niður uppsafnaðan halla.
Hafi halli að einhverju leyti myndast vegna lögbundinna skyldna, miðlægra launaskuldbindinga eða aukinna verkefna sem ekki voru að fullu fjármögnuð þarf að taka tillit til þess við ákvörðun um hvernig honum verði mætt. Annars er hætta á að kostnaður vegna eldri skuldbindinga bitni á námi og þjónustu við núverandi nemendur. Um leið þarf að kanna hvaða svigrúm sé til hagræðingar án þess að hún komi niður á gæðum skólastarfs.
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir auknu framlagi vegna nemendafjölgunar en jafnframt falla niður tímabundin framlög og lögð er aðhaldskrafa á málaflokkinn. Þá gerir fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 ráð fyrir lækkun útgjaldaramma framhaldsskólastigsins á tímabilinu. Meta þarf samanlögð áhrif þessara ráðstafana og krafna um að vinna niður uppsafnaðan halla.
Einnig þarf að skýra hvernig stjórnvöld hyggjast ná fram sparnaði, m.a. með samrekstri þjónustu, flutningi verkefna eða útvistun. Mat á slíkum breytingum þarf að taka mið af framkvæmdakostnaði, áhrifum á skólastarf og því hvort kostnaður færist til nemenda, fjölskyldna eða annarra opinberra aðila.
Við mat á áhrifum fjárhagsþrenginga þarf einnig að kanna hvernig nemendum gengur í námi. Fækkun kennslustunda, stærri námshópar, takmarkaðra áfangaframboð eða minni stuðningur geta haft áhrif á námsárangur, tafið námsframvindu og aukið hættu á brotthvarfi. Greina þarf hvort slík áhrif séu þegar merkjanleg og hverjar afleiðingar frekara aðhalds kunni að verða, sérstaklega fyrir nemendur sem þurfa aukinn stuðning. Við þá greiningu þarf að taka tillit til breytinga á nemendahópnum og annarra þátta sem hafa áhrif á námsárangur.
Tilgangur beiðninnar er að skapa traustan grundvöll fyrir ákvarðanir Alþingis um fjármögnun og rekstur framhaldsskóla. Ábyrg fjármálastjórn krefst þess bæði að vel sé farið með opinbert fé og að fjárveitingar séu raunhæfar miðað við verkefni skólanna. Markmiðið er að tryggja traustan rekstur framhaldsskóla sem styrkir gæði náms og stuðlar að jöfnu aðgengi, nauðsynlegri þjónustu og góðum námsárangri.