Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 250 — 3. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (álitsskylda vegna húsa og mannvirkja).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og Minjastofnun Íslands.
Nefndinni bárust tvær umsagnir auk minnisblaðs og kynningar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á 30. gr. laga um menningarminjar, nr. 80/2012, þannig að afnumin verði skylda eigenda húsa og mannvirkja sem ekki njóta friðunar og byggð voru á árunum 1924–1940, svo og forráðamanna kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, til að leita álits Minjastofnunar Íslands ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa. Þess í stað kveður frumvarpið á um formlega heimild þessara aðila til að leita álits Minjastofnunar óháð byggingarári. Jafnframt er afnumin skylda byggingarfulltrúa til eftirlits með því að álits Minjastofnunar sé aflað áður en leyfi til framkvæmda er veitt, en í staðinn er byggingarfulltrúum veitt heimild til að gera slíkt að skilyrði fyrir leyfisveitingu. Breytingunum er ætlað að draga úr álagi á Minjastofnun Íslands og byggingarfulltrúa en jafnframt að veita eigendum húsa og mannvirkja kost á að leita eftir faglegu áliti Minjastofnunar á varðveislugildi þeirra óháð byggingarári.
Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd 5. júní 2025 með nefndaráliti með breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar en hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok. Líkt og fram kemur í greinargerð er frumvarpið nú lagt fram að nýju, með þeirri breytingartillögu sem meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar lagði til á 156. löggjafarþingi. Sú breytingartillaga kvað á um að í stað þess að byggingarfulltrúum væri heimilt að leggja til að álits Minjastofnunar væri leitað áður en leyfi er veitt til framkvæmda væri þeim heimilt að gera slíkt að skilyrði.
Nefndin hefur haft til hliðsjónar þær umsagnir sem hafa borist um málið auk þeirra umsagna og gagna sem liggja fyrir frá 156. löggjafarþingi og eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar nefndin jafnframt til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi ( þskj. 655, 226. mál).
Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að málið nái fram að ganga til að Minjastofnun Íslands geti sinnt verkefnum sínum á skilvirkari og markvissari hátt, en eins og getið er um í greinargerð frumvarpsins hefur umrædd álitsskylda valdið miklu álagi á starfsemi stofnunarinnar.
Breytingartillögur.
Í minnisblaði sem nefndinni barst frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, dags. 7. október 2026, koma fram ábendingar um viðbótarbreytingar á frumvarpinu til að tryggja betur innbyrðis samræmi 30. gr. laga um menningarminjar sem og tengsl ákvæðisins við 6. mgr. 13. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010. Einnig lagði Minjastofnun Íslands til í umsögn sinni um frumvarpið að 1. málsl. 3. mgr. 30. gr. laga um menningarminjar yrði breytt til að tryggja skýrleika og draga úr hættu á mistúlkun.
Breytingar á 3. mgr. 30. gr. laga um menningarminjar.
Í minnisblaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og umsögn Minjastofnunar Íslands koma fram sjónarmið um óskýrleika sem gæti leitt af því ef 1. málsl. 3. mgr. 30. gr. laganna stæði óbreyttur. Þannig væri hægt að túlka ákvæðið svo að ávallt væri skylt að afla álits Minjastofnunar áður en byggingarleyfi yrði veitt vegna framkvæmda. Slík niðurstaða gengi gegn markmiði frumvarpsins og gæti leitt til mikilla tafa á afgreiðslu byggingarleyfa. Í samræmi við framangreind sjónarmið tekur meiri hlutinn undir að breyta verði málsliðnum svo að öll tvímæli verði tekin af um að álit Minjastofnunar þurfi einungis að liggja fyrir áður en byggingarleyfi er veitt þegar álits hefur verið leitað skv. 1. mgr. 30. gr. eða byggingarfulltrúi hefur gert það að skilyrði skv. 2. mgr. sömu greinar.
Breytingar á 6. mgr. 13. gr. laga um mannvirki.
Í minnisblaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis er einnig lagt til að gerð verði breyting á 6. mgr. 13. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, til að tryggja samræmi milli þeirra laga og laga um menningarminjar ef frumvarpið verður að lögum. Í málsgreininni er kveðið á um að óheimilt sé að gefa út byggingarleyfi fyrir mannvirki sem fellur undir IV., VI. og VII. kafla laga um menningarminjar fyrr en álit Minjastofnunar Íslands liggur fyrir. Þar undir fellur 30. gr. sem er í VII. kafla laga um menningarminjar og frumvarpið tekur til. Meiri hlutinn leggur því til breytingu á 6. mgr. 13. gr. laga um mannvirki í samræmi við tillögur ráðuneytisins þannig að ekki verði áfram kveðið á um sjálfstæða skyldu til að bíða eftir áliti Minjastofnunar heldur fremur vísað til þess að gæta skuli ákvæða áðurnefndra kafla laga um menningarminjar áður en byggingarleyfi er gefið út. Slík tilvísun á sér hliðstæðu í 6. mgr. 13. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010.
Breytingar á heiti frumvarpsins.
Með hliðsjón af framangreindum breytingum leggur meiri hlutinn jafnframt til að heiti frumvarpsins verði breytt þannig að það endurspegli efni þess betur, verði framangreindar breytingartillögur samþykktar.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. C-liður 1. gr. orðist svo: 3. mgr. orðast svo:
Hafi álits Minjastofnunar Íslands verið leitað á grundvelli 1. mgr. eða byggingarfulltrúi gert kröfu þar um skv. 2. mgr. skal það liggja fyrir áður en byggingarleyfi er veitt vegna viðkomandi framkvæmdar. Við afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi skal taka tillit til skilyrða sem Minjastofnun leggur til í áliti sínu. Sama á við um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt skipulagslögum.
2. Við bætist nýr kafli, II. kafli, Breyting á lögum um mannvirki, nr. 160/2010, með einni grein, svohljóðandi:
6. mgr. 13. gr. laganna orðast svo:
Áður en gefið er út byggingarleyfi fyrir mannvirki skal gætt, eftir því sem við á, ákvæða IV., VI. og VII. kafla laga um menningarminjar, nr. 80/2012.
3. Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um menningarminjar og lögum um mannvirki (álit Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja).
Víðir Reynisson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sigurður Örn Hilmarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 15. október 2026.
| Víðir Reynisson, form., frsm. |
Grímur Grímsson. | Guðmundur Ari Sigurjónsson. | |
| Jón Pétur Zimsen. | Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | Sandra Sigurðardóttir. | |
| Sigurður Örn Hilmarsson. | Sigurður Ingi Jóhannsson. | ||