Ferill 230. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 251 — 230. mál.
Beiðni um skýrslu
frá heilbrigðisráðherra um fyrsta stigs forvarnir gegn neyslu barna og ungmenna á tóbaki, áfengi og öðrum vímuefnum.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni, Hildi Sverrisdóttur
Jóni Gunnarssyni, Ingveldi Önnu Sigurðardóttur, Jóni Pétri Zimsen
Ólafi Adolfssyni, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Rósu Guðbjartsdóttur,
Árna Helgasyni og Sigurði Erni Hilmarssyni.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að heilbrigðisráðherra flytji Alþingi skýrslu um fyrirkomulag og fjárframlög til fyrsta stigs forvarna gegn neyslu barna og ungmenna á tóbaki, áfengi og öðrum vímuefnum frá árinu 2000. Skýrslubeiðandi leggur til að skýrslan verði unnin af óháðum sérfræðingum.
Í skýrslunni verði fjallað um:
a. hvernig opinber stefna og fyrirkomulag forvarna hefur þróast frá árinu 2000, hvaða ráðuneyti, ríkisstofnanir og aðrir opinberir aðilar hafa borið ábyrgð á málaflokknum á hverjum tíma og hvernig verkaskipting og ábyrgð hefur breyst,
b. hvaða aðilar hafa komið að framkvæmd forvarna, þar á meðal ríki, sveitarfélög, skólar, frjáls félagasamtök og aðrir aðilar, og hvernig samstarfi ríkis, sveitarfélaga og annarra framkvæmdaraðila hefur verið háttað,
c. hver fjárframlög ríkisins til forvarna hafa verið frá árinu 2000, sundurliðuð eftir árum, helstu fjármögnunarleiðum, viðtakendum og tegund aðgerða,
d. hvernig söfnun og úrvinnsla tölfræðilegra upplýsinga um notkun áfengis, tóbaks og nikótíns og annarra vímuefna hefur þróast á tímabilinu, hvaða kannanir og gagnasöfn hafa verið lögð til grundvallar og hvernig umfang, tíðni, samanburðarhæfni, aðgengi og nýting gagna hefur breyst,
e. hvernig notkun áfengis, tóbaks, nikótíns og annarra vímuefna hefur þróast frá árinu 2000, eftir aldri og öðrum viðeigandi breytum eftir því sem gögn leyfa, með sérstakri áherslu á börn og ungmenni,
f. hvaða vísbendingar liggja fyrir um árangur þeirra forvarna sem ráðist hefur verið í á tímabilinu og að hvaða marki fyrirliggjandi gögn og rannsóknir gera kleift að tengja breytingar á notkun við aðgerðir, stefnur eða fyrirkomulag forvarna.
Greinargerð.
Undir lok 20. aldar var ástand varðandi notkun íslenskra ungmenna á áfengi, tóbaki og öðrum vímuefnum orðið slæmt. Ráðist var í markvisst átak og breytingar á áherslum í forvarnastarfi. Til var „íslenska forvarnarmódelið“ svonefnda sem beindist að vímuefnanotkun unglinga og byggðist á samfélagsmiðaðri nálgun og samstarfi stjórnvalda, sveitarfélaga, rannsakenda, fagfólks, skóla, foreldra og nærsamfélagsins. Aukin áhersla var lögð á að styrkja verndandi þætti og draga úr áhættuþáttum í því umhverfi sem börn og ungmenni alast upp í, m.a. með aukinni þátttöku og eftirliti foreldra, skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi og reglulegri söfnun og nýtingu gagna um stöðu barna og ungmenna. Á sama tíma varð mikill viðsnúningur í áfengis- og tóbaksnotkun íslenskra ungmenna og styrktust ýmsir þeirra verndandi þátta sem forvarnastarfið beindist að.
Nýlegar upplýsingar benda til þess að blikur gætu verið á lofti þegar kemur að stöðu ungmenna í þessum efnum. Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur benti t.d. nýlega á að farið væri að bera á aukinni áfengis- og vímuefnaneyslu meðal barna á grunnskólaaldri. Yngri börn væru farin að drekka og rakti hún þetta m.a. til þess að slakað hefði verið á forvörnum. Niðurstöður nýlegra rannsókna og mælinga gefa þó ekki að öllu leyti einhlíta mynd af þróuninni. Í ESPAD-rannsókninni frá árinu 2024 mælist marktæk aukning frá árinu 2019 í áfengisneyslu, kannabisneyslu og notkun róandi lyfja án lyfseðils meðal íslenskra ungmenna. Fagfólk í félagsmiðstöðvum sem starfar á vettvangi með unglingum telur sömuleiðis að áfengisneysla ungmenna hafi aukist á síðustu árum. Slík aukning er hins vegar ekki sýnileg með sama hætti í nýjustu mælingum íslensku æskulýðsrannsóknarinnar meðal grunnskólanema. Ólíkar niðurstöður nýlegra mælinga undirstrika mikilvægi þess að fyrir liggi heildstætt yfirlit yfir þau gögn sem stjórnvöld byggja mat sitt á, samanburðarhæfni þeirra yfir tíma og hvort þau gefi nægilega skýra mynd af þróuninni.
Jafnframt hafa orðið breytingar á neyslumynstri og nýjar áskoranir komið fram. Má þar m.a. nefna rafrettur, nikótínpúða og önnur ný neysluform. Breyttar aðstæður kalla á mat á því hvort áherslur, aðferðir og fyrirkomulag forvarna hafi þróast í takt við þær áskoranir sem börn og ungmenni standa frammi fyrir. Ekki liggur fyrir heildstætt yfirlit yfir það hvort breytingar hafi orðið á umfangi, áherslum, ábyrgð eða fjármögnun forvarna undanfarin ár og óljóst er hvort það kerfi sem leiddi til fyrri árangurs hefur haldist, breyst eða veikst.
Með vísan til framangreinds er talin þörf á að heilbrigðisráðherra flytji Alþingi skýrslu um þróun stefnu, stjórnsýslu, framkvæmdar og fjármögnunar fyrsta stigs forvarna sem beinast að því að koma í veg fyrir eða seinka því að börn og ungmenni hefji notkun áfengis, tóbaks- og nikótínvara og annarra vímuefna. Jafnframt verði þróun neyslu og gagnaöflunar á tímabilinu rakin og lagt mat á hvaða vísbendingar liggja fyrir um árangur þeirra forvarna sem ráðist hefur verið í.
Lagt er til að skýrslan nái frá árinu 2000 til dagsins í dag. Með þeirri afmörkun verður unnt að bera saman þróun forvarnastarfs á því tímabili þegar mikill viðsnúningur varð í neyslu íslenskra ungmenna og þá þróun sem orðið hefur síðan, m.a. með tilliti til stefnu, stjórnsýslu, framkvæmdar, fjármögnunar og gagnaöflunar.