Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 252 — 125. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins á framkvæmdatíma.
1. Hvernig er gert ráð fyrir því að fjármagna þann mismun sem er á milli framlaga inn í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þeirra greiðslna sem gert er ráð fyrir að inna þurfi af hendi samkvæmt framkvæmdaáætlun á framkvæmdatímanum 2025–2040?
Auk beinna framlaga frá eigendum er gert ráð fyrir að verkefni samgöngusáttmálans verði fjármögnuð með ábata af sölu Keldnalands, sem ríkissjóður lagði til Betri samgangna, auk innheimtu flýti- og umferðargjalda frá 2030. Þá hefur félagið heimild til lántöku ef það er metið hagkvæmt fyrir framgang verkefna.
2. Ef gert er ráð fyrir því að sá mismunur verði fjármagnaður með lántöku, hvaða kjörum er gert ráð fyrir varðandi fjármögnun?
Gert er ráð fyrir að félagið taki lán úr ríkissjóði til að fjármagna framkvæmdir og eru heimildir til þess útfærðar í 6. gr. fjárlaga. Kjörin taka mið af fjármögnunarkjörum ríkisins á markaði auk álags sem er ætlað að mæta kostnaði og áhættu ríkisins af lánveitingunni.
3. Er gert ráð fyrir þessum mismun og kostnaði við fjármögnun hans í arðsemisútreikningum samgöngusáttmálans?
Fjármagnskostnaður vegna mögulegrar lántöku er ekki innifalinn í grunnmatinu en í næmnigreiningu á niðurstöðum greiningarinnar er m.a. kannað hvaða áhrif það hefði á arðsemi ef framkvæmdakostnaður yrði 25% hærri en áætlanir gera ráð fyrir. Innri vextir af fjárfestingum sáttmálans reiknast 8,2% (í stað 9,2%) ef fjárfestingar verða fjórðungi dýrari en fyrirliggjandi áætlanir gera ráð fyrir og það gefur vísbendingar um að mögulegur fjármagnskostnaður hafi ekki mikil áhrif á arðsemi verkefnanna.
Í skýrslu frá janúar 2024 um niðurstöður greiningarinnar segir m.a.: „Vegna óvissu í undirliggjandi breytum hefur niðurstaða félagshagfræðilegu greiningarinnar gengist undir næmnigreiningu þar sem frumforsendum hennar er breytt til að kanna áhrif þeirra á samfélagslega hagkvæmni Samgöngusáttmálans og Sundabrautar. Á heildina litið breytir næmnigreiningin ekki því að Samgöngusáttmálinn og Samgöngusáttmálinn með Sundabraut sé samfélagslega hagkvæmur. Í gegnum allar breyturnar eru báðar sviðsmyndir með hæstu innri vexti yfir 3,5%, sem er viðmiðið til að verkefni teljist samfélagslega hagkvæmt.“
Ítarlegri upplýsingar um næmnigreiningu niðurstaðna félagshagfræðilegrar greiningar má finna í fyrrnefndri skýrslu sem nálgast má á vef Stjórnarráðsins. 1
4. Er raunhæft að gera ráð fyrir framlagi vegna Keldnalands frá og með árinu 2028 og veggjöldum frá og með árinu 2030?
Það er metið raunhæft að gera ráð fyrir flýti- og umferðagjöldum frá 2030 og sölu byggingarréttar af Keldnalandi 2028 verði skipulagsvinnu haldið áfram á vettvangi borgarinnar.
5. Hvaða mannvirki eiga að standa straum af tekjum af veggjöldum ársins 2029?
Flýti- og umferðargjöld eru svæðisbundin gjöld af akstri á höfuðborgarsvæðinu sem er bæði ætlað að fjármagna verkefni sáttmálans og hafa áhrif á umferð, svo sem draga úr álagi á annatímum. Slík gjaldtaka hefur gefist vel í stærri borgum Noregs og í Gautaborg og Stokkhólmi til að ná fram markmiðum um betri, vistvænni og fjölbreyttari borgarsamgöngur. Gjöldin skapa hvata til að nýta gatna- og vegakerfi og aðra samgönguinnviði betur og fjármagna um leið mikilvægar samgönguúrbætur. Flýti- og umferðagjöld eru því ólík veggjöldum sem eru innheimt af notkun tiltekins mannvirkis, t.d. brúar eða ganga, og nýtt til fjármögnunar þess. Á höfuðborgarsvæði eru flýti- og umferðagjöld almennt talin heppilegri en veggjöld þar sem þau geta nýst til að dreifa álagi og stýra umferð um kerfið í heild.
Gjaldtakan yrði framkvæmd með sjálfvirkri myndgreiningu þannig að bílferðir um valdar götur sem tengja afmörkuð valin svæði yrðu skráðar með myndavélum sem taka munu myndir af bílnúmerum. Áhersla yrði á svæði þar sem umferð er mikil og gott aðgengi að öðrum samgönguvalkostum. Ekki er búið að útfæra hvernig gjaldtöku yrði háttað en til greina kemur að hafa hámarksgjald á sólarhring fyrir stórnotendur. Allir sem aka um þessi svæði myndu þurfa að greiða gjald að undanþeginni umferð neyðarbifreiða og bifreiða sem sinna opinberum almenningssamgöngum.
6. Hvaða áhrif hefur það á arðsemismatsútreikninga samgöngusáttmálans ef tafir verða á því að hægt verði að innheimta veggjöld af framkvæmdum?
Eins og sjá má í svari við fyrri töluliðum er hugmyndin ekki sú að innheimta veggjöld fyrir stakar framkvæmdir, heldur flýti- og umferðargjöld. Almennt gildir að ef tafir verða á fyrirséðum tekjum verkefna þá hafa þær ekki jákvæð áhrif á niðurstöðu arðsemisútreikninga, enda eru fjármunir sem berast síðar minna virði í slíkum útreikningum en fjármunir sem berast fyrr. Áhrifin geta þó verið hverfandi, t.d. ef töfin er stutt.
1 www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0252-f_I.pdf