Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 253 — 128. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um veggjöld innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
1. Af hvaða framkvæmdum innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins verða innheimt veggjöld af almenningi og hverjum ekki, ef einhverjum, miðað við áætlanir Betri samgangna um 143 milljarða kr. tekjur af veggjöldum, flýti- og umferðargjöldum?
Flýti- og umferðagjöld eru svæðisbundin gjöld af akstri á höfuðborgarsvæðinu sem er bæði ætlað að fjármagna verkefni sáttmálans og hafa áhrif á umferð, svo sem draga úr álagi á annatímum. Slík gjaldtaka hefur gefist vel til að mynda í stærri borgum Noregs og í Gautaborg og Stokkhólmi til að ná fram markmiðum um betri, vistvænni og fjölbreyttari borgarsamgöngur. Gjöldin skapa hvata til að nýta gatna- og vegakerfi og aðra samgönguinnviði betur og fjármagna um leið mikilvægar samgönguúrbætur. Flýti- og umferðagjöld eru því ólík veggjöldum sem eru innheimt af notkun tiltekins mannvirkis, t.d. brúar eða ganga, og nýtt til fjármögnunar þess. Á höfuðborgarsvæðinu eru flýti- og umferðagjöld almennt talin heppilegri en veggjöld þar sem þau geta nýst til að dreifa álagi og stýra umferð um kerfið í heild.
2. Hvað er gert ráð fyrir að innheimta í gjöld fyrir hverja ekna ferð?
Gjaldtakan yrði framkvæmd með sjálfvirkri myndgreiningu þannig að bílferðir um valdar götur sem tengja afmörkuð valin svæði yrðu skráðar með myndavélum sem taka munu myndir af bílnúmerum. Áhersla yrði á svæði þar sem umferð er mikil og gott aðgengi að öðrum samgönguvalkostum. Ekki er búið að útfæra hvernig gjaldtöku yrði háttað en til greina kemur að hafa hámarksgjald á sólarhring fyrir stórnotendur. Allir sem aka um þessi svæði myndu þurfa að greiða gjald að undanþeginni umferð neyðarbifreiða og bifreiða sem sinna opinberum almenningssamgöngum.
Við greiningar á sviðsmyndum um flýti- og umferðargjöld var á sínum tíma miðað við 200 eða 300 kr. á ferð á annatíma og 0,50 eða 100 kr. þess utan, eins og fram kom í fjölmiðlum árið 2022 og aftur árið 2026. Gert var ráð fyrir að aðeins eitt gjald yrði innheimt á klukkustund og að gjaldfrjálst væri um helgar og rauða daga.
3. Er mismunandi gjald eftir mismunandi verkefnum í sáttmálanum? Mun þannig ferð í gegnum Miklubrautargöng kosta meira eða minna en t.d. ferð um Sæbrautarstokk?
Sjá svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
4. Er í forsendum sáttmálans gert ráð fyrir að veggjöld innan höfuðborgarsvæðisins verði alls staðar þau sömu eða er gert ráð fyrir mismunandi gjaldtöku eftir hverfum eða bæjarhlutum?
Sjá svar við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
5. Hvenær hyggst ráðherra leggja til að gjaldtakan verði rædd á Alþingi?
Í sáttmálanum og fylgigögnum hans kemur fram að gert sé ráð fyrir að heimild til gjaldtöku flýti- og umferðagjalda verði útfærð með lagasetningu. Ekki liggur fyrir hvenær slíkt frumvarp verður lagt fyrir Alþingi.
6. Hyggst ráðherra leggja til að Alþingi samþykki gjaldtökuna? Ef svo er ekki, hverjir eiga að taka ákvörðun um hana?
Sjá svar við 5. tölul. fyrirspurnarinnar.