Ferill 126. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 254  —  126. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um skuldbindingar Betri samgangna.


    Eftirfarandi svar ráðherra byggir á upplýsingum sem aflað var hjá Betri samgöngum.

     1.      Hvaða skuldbindingar hafa Betri samgöngur samþykkt til að koma verkefninu í Keldnalandi í framkvæmd, t.d. varðandi framkvæmdir sem þarf að ráðast í til að koma lóðum í söluhæft ástand?
    Betri samgöngur ohf. hafa ekki skuldbundið sig til framkvæmda á Keldnalandi umfram fyrirhugaðar fjárfestingar í borgarlínu um landið sem eru hluti af framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans.

     2.      Hver er kostnaður við að koma lóðum í Keldnalandi í söluhæft ástand og hver ber hann, þar á meðal fjármögnunarkostnað? Hér er átt við allan kostnað sem af hlýst, svo sem gatnagerð, innviðagjöld, ef við á, eða annan kostnað vegna þátttöku í framkvæmdum við innviði.
    Undirbúningur Betri samgangna vegna Keldnalands hófst haustið 2021 og samkeppni fyrirtækisins og Reykjavíkurborgar um þróunaráætlun Keldnalands lauk haustið 2023. Vinnslutillaga að rammahluta aðalskipulags Reykjavíkur fyrir Keldnaland ásamt drögum að þróunaráætlun og fylgigögnum var kynnt sumarið 2025. Nú er unnið að endanlegri tillögu að rammahluta samhliða undirbúningi fyrstu deiliskipulagsáætlana. Einnig er verið að undirbúa tímasettar áætlanir um uppbyggingu grunninnviða. Mat á kostnaði við að koma lóðum á Keldnalandi í söluhæft ástand liggur ekki fyrir og ekki hefur verið ákveðið hver ber þann kostnað. Formleg tillaga að skipulagi Keldnalands í heild (rammahluti aðalskipulags) hefur ekki verið kynnt og tekin til meðferðar og er deiliskipulagsgerð ekki formlega hafin. Skipulagningu og uppbyggingu verður skipt í minni áfanga, enda ljóst að svo stórt og fjölmennt hverfi verður í uppbyggingu langt fram á næsta áratug.

     3.      Hvað er gert ráð fyrir að söluverð lóða til uppbyggingaraðila íbúða þurfi að vera til þess að tryggja þann ábata sem gert er ráð fyrir í áætlunum?
    Í vinnslutillögu rammahluta aðalskipulags og drögum að þróunaráætlun fyrir Keldnaland sem kynnt var 2025 er gert ráð fyrir að þar geti risið 5.800 íbúðir miðað við einfalda nálgun um að meðalstærð íbúða verði 100 fm (brúttó). Gera má ráð fyrir að deiliskipulagsgerð og uppbygging á svo stóru svæði taki mörg ár. Byggingarmagn, stærð og þar með heildarfjöldi íbúða liggur ekki endanlega fyrir fyrr en að einhverjum árum liðnum þegar búið verður að staðfesta deiliskipulagsáætlanir fyrir allt svæðið. Þá er í vinnslutillögu rammahluta og þróunaráætlun gert ráð fyrir miklu atvinnuhúsnæði þannig að 5.500–7.500 manns geti sótt þar vinnu. Hverfið verði því blanda af íbúðar- og atvinnuhúsnæði.
    Í fjárstreymisáætlun uppfærðs sáttmála er gert ráð fyrir 50 milljarða kr. tekjum af sölu byggingarréttar á Keldnalandi til fjármögnunar verkefna sáttmálans. Ef gert er ráð fyrir að byggingarréttur atvinnuhúsnæðis skili 15% af þeim tekjum en íbúðarhúsnæðis 85% og að endanlegur fjöldi íbúða verði 5.800 þá jafngildir það um 7,5 millj. kr. á hverja íbúð eða 75 þús. kr. á fermetra.
    Miðað við útboð Garðabæjar og Kópavogs á byggingarrétti íbúða á deiliskipulögðum lóðum síðustu misseri má ætla að greiddar hafi verið 120–140 þús. kr. á fermetra sem jafngildir 12–14 millj. kr. á hverja 100 fm íbúð.

     4.      Hvernig stuðla Betri samgöngur að því að kostnaður við að koma lóðum í byggingarhæft ástand fari ekki fram úr áætlunum til að tryggja þann ábata sem gert er ráð fyrir í samgöngusáttmálanum?
    Gert er ráð fyrir að gerðir verði samningar við Reykjavíkurborg og veitufyrirtæki um uppbyggingu sameiginlegra innviða, svo sem gatna og veitukerfa, til að lóðir verði byggingarhæfar. Í þeim samningum verði m.a. leitast við að tryggja að kostnaður við fyrrnefnda innviði skerði ekki þann ábata sem sala byggingarréttar á að skila til verkefna samgöngusáttmálans.

     5.      Hvaða áhrif hefur það ef breytingar verða á fjölda íbúða sem áætlað er að byggja í hverfinu?
    Ef íbúðum fjölgar eða fækkar og flatarmál íbúðarhúsnæðis eykst eða minnkar að sama skapi þá mun það, að óbreyttu verðmæti byggingarréttar hvers fermetra, auka eða minnka ábata af sölu byggingarréttar í hverfinu.

     6.      Til hvaða ráðstafana geta Betri samgöngur gripið ef minna fjárflæði verður af Keldnalandi en áætlað er?
    Ef útlit er fyrir að tekjur af Keldnalandi verði lægri en áætlað er í uppfærðum samgöngusáttmála er hægt að bregðast við því í samvinnu við eigendur félagsins, til að mynda með uppfærslu tíma- og framkvæmdaáætlana verkefna sáttmálans eða með öðrum fjármögnunarleiðum.