Ferill 235. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 259 — 235. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um ungmennahús í framhaldsskólum.
Flm.: Guðmundur Ari Sigurjónsson, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Grímur Grímsson, Halla Hrund Logadóttir, Jónína Björk Óskarsdóttir, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sandra Sigurðardóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigurður Helgi Pálmason, Þórarinn Ingi Pétursson, Ragna Sigurðardóttir, Arna Lára Jónsdóttir.
Alþingi ályktar að fela mennta- og barnamálaráðherra að undirbúa uppbyggingu starfsemi ungmennahúsa við framhaldsskóla landsins þar sem nemendum verði tryggður aðgangur að faglegu félags- og tómstundastarfi, opnu félagsrými og stuðningi við félagslega þátttöku, frumkvæði og lýðræðisstarf.
Starf ungmennahúsa skal byggjast á faglegum grunni félagsmiðstöðva og æskulýðsstarfs en taka mið af aldri, þroska, sjálfstæði og þörfum ungmenna á framhaldsskólaaldri. Starfið skal einkum miða að því að:
1. Skapa aðgengilegan og öruggan vettvang fyrir opið félagsstarf og samveru ungmenna.
2. Efla félagsleg tengsl, virkni, sköpun, frumkvæði og þátttöku ungmenna.
3. Virkja og styðja við nemendalýðræði og veita nemendafélögum, ráðum, nefndum, klúbbum og öðru félagsstarfi nemenda faglegan stuðning án þess að skerða sjálfstæði þess.
4. Stuðla að virkri félagslegri þátttöku ungmenna og sérstaklega þátttöku ungmenna sem síður taka þátt í hefðbundnu félagslífi eða öðrum tómstundum.
5. Efla forvarnir og félagslega velferð ungmenna og skapa, eftir því sem aðstæður leyfa, tengingu milli félagsstarfs framhaldsskóla og æskulýðsstarfs í nærsamfélaginu.
Við undirbúninginn skal ráðherra kortleggja núverandi félags- og tómstundastarf í framhaldsskólum, félagsaðstöðu nemenda, mönnun og fagmenntun starfsfólks sem sinnir félagsstarfi og stuðningi við nemendafélög. Jafnframt verði sérstaklega kannað hvernig fyrirkomulag hefur reynst í framhaldsskólum þar sem starfar fagmenntað starfsfólk á sviði félags- og tómstundastarfs.
Ráðherra skal í samráði við ungmenni, framhaldsskóla, sveitarfélög, fagfólk og samtök á sviði æskulýðs- og félagsmiðstöðvastarfs móta lágmarksviðmið fyrir starfsemi ungmennahúsa. Viðmiðin skulu meðal annars taka til faglegs starfs, mönnunar og menntunar starfsfólks, aðstöðu, opnunartíma, virkrar þátttöku og raunverulegra áhrifa ungmenna á mótun og þróun starfsins, stuðnings við nemendalýðræði og samstarfs ríkis og sveitarfélaga.
Ráðherra skal á grundvelli þeirrar vinnu leggja fyrir Alþingi, eigi síðar en við upphaf haustþings 2027, framkvæmda- og kostnaðaráætlun um innleiðingu ungmennahúsa við framhaldsskóla landsins ásamt tillögum að nauðsynlegum breytingum á lögum og reglugerðum.
Greinargerð.
Félagsleg tengsl, virk þátttaka og tilfinning fyrir því að tilheyra samfélagi skipta miklu fyrir velferð og farsæld ungmenna. Samhliða námi gegna framhaldsskólar mikilvægu félagslegu hlutverki í lífi ungmenna. Þar verja þau stórum hluta dagsins, mynda tengsl, taka þátt í félagsstarfi og stíga mörg sín fyrstu skref í skipulögðu lýðræðis- og félagsstarfi.
Umgjörð framhaldsskólanáms hefur jafnframt tekið verulegum breytingum á undanförnum árum. Stytting náms til stúdentsprófs hefur dregið úr þeim tíma sem margir nemendur verja í framhaldsskóla og þar með þeim tíma sem gefst til að mynda tengsl, byggja upp hefðir og taka virkan þátt í félagsstarfi skólanna. Þá hafði heimsfaraldur COVID-19 mikil áhrif á skólastarf og félagsleg samskipti ungmenna á mótunarárum þeirra. Þessar breytingar undirstrika mikilvægi þess að huga markvisst að félagslegu hlutverki framhaldsskólans samhliða formlegu námi.
Félagslíf íslenskra framhaldsskóla er víða öflugt og nemendafélög sinna mikilvægu hlutverki. Engu að síður er verulegur munur eftir skólum á því hvaða faglegi stuðningur og félagsaðstaða stendur nemendum til boða. Í sumum framhaldsskólum starfar starfsfólk með sérþekkingu á félags- og tómstundastarfi en annars staðar er stuðningur við félagslíf hluti af starfi kennara eða annars starfsfólks samhliða öðrum verkefnum.
Markmið tillögunnar er að þróa samræmda faglega umgjörð um þennan þátt framhaldsskólastarfs með uppbyggingu ungmennahúsa við framhaldsskóla landsins.
Hugmyndafræði ungmennahúsa.
Með ungmennahúsi er í tillögunni átt við faglegan vettvang félags- og tómstundastarfs fyrir ungmenni sem byggist á hugmyndafræði félagsmiðstöðva og almennu faglegu æskulýðsstarfi en er sérstaklega lagaður að aldri, þroska og auknu sjálfstæði ungmenna á framhaldsskólaaldri.
Starfsemi ungmennahúss yrði þannig ekki eingöngu hefðbundið viðburðahald eða aðstaða fyrir nemendafélag. Þar yrði gert ráð fyrir opnu félagsstarfi þar sem ungmenni gætu komið saman án þess að þátttaka væri bundin við skipulagðan viðburð, nefndarstarf eða aðild að tilteknum félagsskap.
Mikilvægt er að ungmennahús verði vettvangur allra nemenda. Sérstök áhersla verði lögð á að ná til þeirra ungmenna sem af einhverjum ástæðum finna sig síður í hefðbundnu félagslífi framhaldsskóla eða standa utan sterkra félagslegra tengslaneta.
Starfið skal jafnframt byggjast á virkri þátttöku og valdeflingu ungmenna sjálfra. Fagfólk skapar umgjörð, leiðbeinir og styður en ungmennin sjálf fá raunveruleg áhrif á mótun og þróun starfsins, svigrúm til að stofna klúbba og verkefni, skapa viðburði og hrinda eigin hugmyndum í framkvæmd.
Faglegt félags- og tómstundastarf.
Æskulýðsstarf hefur sjálfstætt félags-, forvarna-, uppeldis- og menntunarlegt gildi. Í slíku starfi er lögð áhersla á virkni, frumkvæði, félagsfærni, lýðræðisvitund og þátttöku ungmenna.
Mikilvægur þáttur í starfi ungmennahúsa væri jafnframt reynslunám og óformlegt nám. Með því að fá svigrúm til að þróa hugmyndir, skipuleggja og framkvæma verkefni, taka ábyrgð og vinna með öðrum öðlast ungmenni reynslu og færni sem nýtist þeim bæði innan skólasamfélagsins og síðar í lífi og starfi. Faglegt æskulýðsstarf skapar þannig vettvang þar sem ungmenni læra í gegnum virka þátttöku og eigin reynslu.
Ungmennahúsum er ekki ætlað að koma í stað námsráðgjafar, heilbrigðisþjónustu, sálfræðiþjónustu eða annarrar sérhæfðrar stoðþjónustu innan framhaldsskóla. Hlutverk þeirra er annars eðlis. Með faglegu félags- og tómstundastarfi er leitast við að styrkja félagslega innviði skólasamfélagsins, skapa tengsl og tækifæri til þátttöku og veita ungmennum öruggan vettvang til samveru og frumkvæðis.
Fagfólk ungmennahúss getur jafnframt gegnt mikilvægu tengihlutverki við aðra þjónustu skólans þegar þörf er á.
Samkvæmt 39. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, skal starfa nemendafélag í hverjum framhaldsskóla. Nemendafélög vinna meðal annars að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og skal þeim búin aðstaða til starfsemi sinnar. Með tillögu þessari eiga ungmennahús að styrkja þessa lögbundnu umgjörð en ekki taka yfir starf nemendafélaga. Sjálfstæði nemenda við stjórn eigin félaga og félagsstarfs er mikilvægt.
Fagfólk ungmennahúss gæti hins vegar veitt nemendum leiðsögn og stuðning við meðal annars verkefnastjórnun, fundarstjórn, skipulag viðburða, fjármál, klúbbastarf, þátttöku í starfinu og lýðræðislega ákvarðanatöku. Með því getur ungmennahúsið orðið mikilvægur vettvangur lýðræðisþjálfunar og virkrar þátttöku ungmenna.
Tengsl við æskulýðsstarf.
Tillagan byggist á þeirri hugmyndafræði sem liggur að baki íslensku æskulýðsstarfi. Samkvæmt æskulýðslögum, nr. 70/2007, er æskulýðsstarf skipulögð félags- og tómstundastarfsemi og skal í slíku starfi hafa í huga félags-, forvarna-, uppeldis- og menntunarlegt gildi þess. Þá skal hvetja börn og ungmenni til frumkvæðis og virkrar þátttöku.
Æskulýðslög miðast einkum við börn og ungmenni á aldrinum 6–25 ára. Ungmenni á framhaldsskólaaldri falla því innan þess aldurshóps sem löggjöfin um æskulýðsstarf tekur sérstaklega mið af.
Víða um land er öflugt faglegt félagsmiðstöðvastarf fyrir börn á grunnskólaaldri. Með ungmennahúsum við framhaldsskóla væri leitast við að skapa samfellu í faglegu félags- og tómstundastarfi, jafnframt því sem starfsemin þróast með aldri og auknu sjálfstæði ungmennanna.
Samstarf ríkis og sveitarfélaga.
Framhaldsskólar eru á ábyrgð ríkisins en sveitarfélög gegna víða lykilhlutverki í rekstri félagsmiðstöðva og öðru æskulýðsstarfi. Því er mikilvægt að við undirbúning ungmennahúsa verði sérstaklega kannað hvernig nýta megi þekkingu og mannauð sveitarfélaga og hvernig samstarfi ríkis, skóla og sveitarfélaga verði best fyrir komið.
Slíkt samstarf gæti jafnframt skapað möguleika á því að aðstaða ungmennahúsa nýttist ekki eingöngu nemendum viðkomandi framhaldsskóla heldur, eftir því sem aðstæður leyfa, öðrum ungmennum í nærsamfélaginu utan hefðbundins skólatíma.
Framkvæmd.
Tillagan felur ekki í sér að Alþingi ákveði að svo stöddu eitt tiltekið rekstrarform fyrir alla framhaldsskóla. Skólar eru ólíkir að stærð, staðsetningu og skipulagi og aðstæður í nærsamfélagi þeirra eru mismunandi. Því er lagt til að fyrst verði kortlögð núverandi staða og reynsla, mótuð fagleg lágmarksviðmið og metin mismunandi rekstrarlíkön. Á grundvelli þeirrar vinnu verði unnin framkvæmda- og kostnaðaráætlun um stigvaxandi uppbyggingu ungmennahúsa um land allt.
Við uppbyggingu starfsins er mikilvægt að gera ráð fyrir að tíma taki að byggja upp þátttöku, hefðir og menningu í kringum ungmennahús. Reynslan sýnir að aðsókn ein og sér, sérstaklega á fyrstu stigum starfsins, gefur ekki fullnægjandi mynd af árangri þess. Tryggja þarf fagfólki nægilegt svigrúm og stöðugleika til að þróa starfið í samstarfi við ungmennin og festa það í sessi.
Við mat á starfseminni ætti jafnframt að horfa til fleiri þátta en aðsóknar, svo sem virkni og áhrifa ungmenna, félagslegrar þátttöku, fjölbreytni þátttakenda og þess hvort ungmenni fái raunveruleg tækifæri til frumkvæðis og ábyrgðar.
Markmiðið er skýrt: að til framtíðar hafi ungmenni í framhaldsskólum landsins aðgang að faglega mönnuðu ungmennahúsi þar sem þau geta komið saman, tekið frumkvæði og skapað, tekið þátt og tilheyrt samfélagi.