Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 261 — 236. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um úttekt á starfsemi Ríkisútvarpsins ohf.
Flm.: Rósa Guðbjartsdóttir, Ólafur Adolfsson, Jón Gunnarsson, Jens Garðar Helgason, Árni Helgason, Hildur Sverrisdóttir, Ingveldur Anna Sigurðardóttir.
Alþingi ályktar að fela menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að skipa fimm manna starfshóp innan 30 daga frá samþykkt ályktunar þessarar sem hafi það hlutverk að greina starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. Við úttekt á starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. skulu m.a. eftirfarandi atriði greind:
1. Rekstur, svo sem tekjur, útgjöld, starfsmannafjöldi o.fl. samanborið við einkarekna fjölmiðla.
2. Kjarnastarfsemi og kostnaður við hana.
3. Framtíðarhlutverk.
4. Staða á auglýsingamarkaði.
5. Áhrif á rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla.
6. Hvort og þá hvaða starfsemi er þess eðlis að einkareknir fjölmiðlar geti ekki sinnt henni.
7. Hvaða annarri starfsemi í skilningi 4. gr. laga nr. 23/2013 sé sinnt og á hvaða grundvelli ákvörðun um slíka starfsemi hafi verið tekin.
8. Samanburður við ríkismiðla annarra Norðurlandaþjóða, einkum hvað varðar fjármögnun, hlutverk og miðlun á öðrum miðlum en sjónvarpi og hljóðvarpi.
Starfshópurinn skal skila heildstæðri greinargerð innan sex mánaða frá skipun hans.
Greinargerð.
Staða einkarekinna fjölmiðla hefur versnað til muna á undanförnum árum á sama tíma og staða RÚV hefur að mestu leyti haldist óbreytt. Staða RÚV gagnvart öðrum fjölmiðlum hefur lengi verið til umræðu og þá sérstaklega umsvif RÚV á auglýsingamarkaði. Þá hefur RÚV sætt gagnrýni vegna fréttaflutnings og deilt hefur verið um hvort RÚV sinni hlutlægnisskyldu sinni með fullnægjandi hætti. Slík gagnrýni á störf fjölmiðla er algeng og ekki bundin við RÚV. Aftur á móti verður að líta til þess að RÚV er rekið fyrir almannafé og sérstakur skattur er lagður á almenning í þeim tilgangi að fjármagna starfsemi þess.
Í tillögu þessari er lagt til að skipaður verði sérstakur starfshópur til þess að gera úttekt á starfsemi RÚV og bera saman við stöðu einkarekinna fjölmiðla, m.a. með tilliti til reksturs, útgjalda, tekna og starfsmannafjölda. Jafnframt skuli starfshópurinn fjalla um framtíðarhlutverk RÚV í síbreytilegu fjölmiðlaumhverfi og stöðu þess á auglýsingamarkaði. Auk þess skal starfshópurinn leggja mat á hvort einhver starfsemi RÚV sé þess eðlis að einkaaðilum sé ekki fært að sinna sams konar hlutverki með viðunandi hætti. Þá skal hópurinn taka til skoðunar aðra starfsemi RÚV í skilningi 4. gr. laga nr. 23/2013 og hvaða ástæður liggi því til grundvallar að RÚV standi í annarri starfsemi en þeirri sem talin er upp í 3. gr. laganna. Að auki skal nefndin bera saman starfsemi RÚV og annarra ríkisfjölmiðla á Norðurlöndunum og þá sérstaklega hvað varðar fjármögnun, hlutverk og aðra starfsemi sem ekki er lögbundin, svo sem hlaðvörp og miðlun á samfélagsmiðlum. Á undanförnum árum hafa verið gerðar breytingar á lagaumhverfi og starfsháttum ríkismiðla annars staðar á Norðurlöndunum um framangreind atriði og er tilefni til þess að athuga hvort rétt sé að ráðist verði í sambærilegar breytingar á starfsemi RÚV.