Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 262  —  237. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um lögfestingu leikskólastigsins og brúun umönnunarbilsins.


Flm.: Dagur B. Eggertsson, Arna Lára Jónsdóttir, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Ragna Sigurðardóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson.


    Alþingi ályktar að fela mennta- og barnamálaráðherra í samráði við félags- og húsnæðismálaráðherra, innviðaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram frumvarp til laga um lögfestingu réttar barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi, í samræmi við tillögur aðgerðahóps stjórnvalda um brúun umönnunarbilsins frá desember 2025. Ráðherra skal við gerð frumvarpsins hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga og fulltrúa verkalýðsfélaga starfsfólks í leikskólum.
    Frumvarpið kveði m.a. á um:
     1.      Að réttur barna til leikskólavistar frá 18 mánaða aldri taki gildi eigi síðar en árið 2028.
     2.      Að réttur allra barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi verði tryggður eigi síðar en árið 2030.
     3.      Að rekstur leikskóla verði skilgreindur sem lögbundið verkefni sveitarfélaga.
     4.      Að gert verði samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um verkaskiptingu, fjármögnun og uppbyggingu innviða.
     5.      Að unnin verði tímasett aðgerðaáætlun um styrkingu leikskólastigsins og mönnun þess á tímabilinu 2027–2030 sem unnin verði samhliða frumvarpsgerðinni.
    Ráðherra leggi fram frumvarp með nánari útfærslu á framangreindum atriðum eigi síðar en á haustþingi 2028.

Greinargerð.

    Leikskólinn er fyrsta skólastigið og mikilvægur þáttur í farsælum þroska og uppvexti barna. Engu að síður hefur skylda sveitarfélaga til að bjóða börnum leikskólavist ekki verið lögfest, né heldur réttur barna til leikskólavistar eftir að fæðingarorlofi lýkur.
    Þingsályktunartillaga þessi er lögð fram í framhaldi af skýrslu aðgerðahóps stjórnvalda, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins um brúun umönnunarbilsins frá desember 2025 og sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 7. mars 2024 þar sem sett var það markmið að vinna tímasetta áætlun um aðgerðir til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá desember 2024 er lögð áhersla á að bæta velferðarþjónustu, styrkja innviði og bæta lífskjör fjölskyldna með markvissum kerfisbreytingum og fjárfestingu í þjónustu um land allt. Tillaga þessi er í samræmi við þau markmið og styður sérstaklega við eflingu þjónustu við barnafjölskyldur og aukna atvinnuþátttöku.
    Markmið tillögunnar er að tryggja lagalegan rétt barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi, brúa umönnunarbilið í áföngum og styrkja leikskólastigið sem fyrsta skólastig hins opinbera menntakerfis.

Núverandi staða.
    Samkvæmt gildandi lögum er einstaklingsbundinn réttur barna til leikskólavistar frá tilteknum aldri ekki tryggður. Aðgangur barna að leikskólum er að verulegu leyti háður ákvörðunum sveitarfélaga og fjárhagsstöðu þeirra hverju sinni. Þetta leiðir til þess að staða barna og foreldra er mismunandi eftir búsetu, eykur álag á fjölskyldur og getur haft áhrif á möguleika foreldra til atvinnuþátttöku. Afleiðingarnar geta aukið ójöfnuð milli kynja á vinnumarkaði. Slíkt samræmist illa markmiðum stjórnvalda um jafna stöðu barna og foreldra.
    Leikskólar gegna lykilhlutverki í þroska barna, félagsfærni, málþroska og undirbúningi þeirra fyrir grunnskólanám. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að snemmtæk íhlutun í menntun barna hefur veruleg langtímaáhrif á námsárangur, þátttöku í samfélaginu og lífsgæði. Þrátt fyrir þetta hefur leikskólastigið ekki sömu lagalegu stöðu og önnur skólastig. Þótt leikskólinn sé lögum samkvæmt fyrsta skólastigið í íslenska skólakerfinu hefur réttur barna til leikskólagöngu ekki verið tryggður með sama hætti og réttur þeirra til náms á öðrum skólastigum. Gildandi lög tryggja ekki hverju barni einstaklingsbundinn rétt til leikskólavistar frá tilteknum aldri.
    Með lögfestingu réttar barna til leikskólavistar yrði staða barna styrkt, jafnræði aukið og meira samræmi tryggt í þjónustu sveitarfélaga. Jafnframt myndi slík lögfesting auka fyrirsjáanleika fyrir foreldra og renna styrkari stoðum undir íslenskt menntakerfi.

Brúun umönnunarbilsins er þjóðhagslega mikilvæg.
    Samkvæmt skýrslu aðgerðahóps stjórnvalda um brúun umönnunarbilsins frá desember 2025 er umönnunarbilið í reynd utan ábyrgðarsviðs bæði ríkis og sveitarfélaga þar sem enginn lögbundinn réttur er til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi. Skýrslan leggur til að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur í áföngum þannig að tryggður verði réttur frá 18 mánaða aldri eigi síðar en árið 2027 og að full samfella náist milli fæðingarorlofs og leikskóla eigi síðar en árið 2030.
    Í skýrslunni er jafnframt bent á að samfélagslegur ábati af því að tryggja börnum leikskólavist við 12 mánaða aldur sé metinn umtalsverður eða um 11 milljarðar kr. á ári og þar með meiri en ábati af frekari lengingu fæðingarorlofs, sem reiknast neikvæður. Lögfesting réttar til leikskólavistar er því lykilforsenda þess að tryggja samfellu í þjónustu við börn frá lokum fæðingarorlofs.
    Þessi niðurstaða undirstrikar að uppbygging leikskólastigsins og tryggður réttur barna til leikskólavistar er ekki aðeins félagslegt réttlætismál heldur einnig hagkvæmt samfélagslega og styður við sjálfbæra þróun vinnumarkaðar og opinberra fjármála.

Jafnrétti og áhrif á vinnumarkað.
    Samkvæmt skýrslu aðgerðahóps stjórnvalda um brúun umönnunarbilsins hefur umönnunarbilið veruleg áhrif á atvinnuþátttöku foreldra og ráðstöfunartekjur þeirra, einkum mæðra. Skortur á tryggðri dagvistun að loknu fæðingarorlofi leiðir til þess að foreldrar fresta endurkomu á vinnumarkað eða draga úr starfshlutfalli sínu.
    Með lögfestingu réttar barna til leikskólavistar verður stuðlað að aukinni atvinnuþátttöku foreldra, bættri samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og auknu jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
    Tillagan styður þannig við áframhaldandi mikla og aukna atvinnuþátttöku foreldra ungra barna, jafnari stöðu kynjanna og aukna framleiðni og stöðugleika á vinnumarkaði. Jafnframt er henni ætlað að bæta lífsgæði fjölskyldna með auknum fyrirsjáanleika og betra samræmi fjölskyldu- og atvinnulífs.

Norrænn samanburður.
    Á Norðurlöndum hefur almennt verið tryggð samfella milli fæðingarorlofs og dagvistunar með lögbundnum rétti barna til dagvistunar við eða skömmu eftir lok fæðingarorlofs. Ísland sker sig úr nágrannaríkjum að því leyti að slíkur réttur er ekki tryggður með lögum.
    Með lögfestingu réttar barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi verður stigið mikilvægt skref í átt að því að samræma íslenskt velferðar- og menntakerfi því sem best gerist á Norðurlöndum og styrkja stoðir fjölskyldustefnu stjórnvalda.

Fjárhagsleg áhrif.
    Lögfesting leikskólastigsins kallar á aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun og uppbyggingu innviða. Á móti kemur að snemmtæk menntun barna skilar samfélagslegum ávinningi til lengri tíma.
    Í frumvarpi ráðherra skal sérstaklega gera grein fyrir kostnaðarmati, framkvæmdaáætlun og áfangaskiptri innleiðingu auk þess sem það skal unnið í samráði við sveitarfélög.

Samræmi við stefnu stjórnvalda.
    Tillagan er í samræmi við markmið stjórnvalda um jafna stöðu barna, fjölskylduvænt samfélag, aukna atvinnuþátttöku, snemmtækan stuðning við börn og aukna inngildingu. Með samþykkt tillögunnar verður stigið mikilvægt skref í átt að heildstæðri stefnu um þjónustu við börn frá fæðingu til grunnskólaaldurs.
    Lögfesting leikskólastigsins er lykilforsenda þess að tryggja jafnt aðgengi barna að menntun frá upphafi ævi og brúa það bil sem nú er milli fæðingarorlofs og leikskóla. Tillagan felur í sér mikilvægt framfaraskref í þágu barna, foreldra og samfélagsins í heild.