Ferill 240. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 265 — 240. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um tekjur og kostnað ríkisins vegna erlendra ferðamanna.
Frá Jens Garðari Helgasyni.
1. Hverjar voru tekjur ríkisins af neyslu ferðamanna árin 2023–2025?
2. Hver var kostnaður ríkisins við innviði og þjónustu sem erlendir ferðamenn nýta með beinum hætti árin 2023–2025? Hvaða innviðir og þjónusta falla þar undir?
3. Stóðu skattgreiðslur erlendra ferðamanna undir kostnaði sem hlaust af veru þeirra á Íslandi árin 2023–2025? Ef svo var ekki, hve miklu munar þar á?
4. Hversu margir ferðamenn voru að jafnaði á Íslandi í hverjum mánuði árin 2023–2025 og á hverju byggjast þeir útreikningar?
5. Hversu margir ferðamenn koma til Íslands sem skipafarþegar og hversu hátt hlutfall þeirra er skiptifarþegar sem komu til landsins eða fóru frá landinu með flugi?
6. Hverjar voru virðisaukaskattstekjur ríkissjóðs á mann á dag árin 2023–2025 í tilviki erlendra ferðamanna í samanburði við einstaklinga með skattalega heimilisfesti á Íslandi?
7. Hefur ráðuneytið staðið fyrir skýrslugerð eða greiningu á viðhorfi ferðamanna til þess að greiða ferðamannaskatt eða gjald ofan á núverandi gjöld, t.d. bílastæðagjöld, fyrir aðgang að áfangastöðum í eigu ríkisins?
8. Hefur ráðuneytið staðið fyrir skýrslugerð eða greiningu á því hvernig best væri að haga álagsstýringu í ferðaþjónustu á áfangastöðum í eigu ríkisins?
9. Hefur ráðuneytið greitt fyrir skýrslugerð, álitsgerðir eða sambærilegar greiningar á fjölda ferðamanna sem heimsóttu landið, tekjum sem þeir skildu eftir sig og kostnaði sem af þeim hlaust árin 2023–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og greiningaraðilum.
10. Hefur ráðuneytið greitt fyrir lögfræðilegar álitsgerðir um hvort gjaldskylda á erlenda ferðamenn fyrir aðgang að ferðamannastöðum samræmist skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum árin 2011–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og greiningaraðilum.
Skriflegt svar óskast.