Ferill 241. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 266 — 241. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um brotthvarf á framhaldsskólastigi.
Frá Degi B. Eggertssyni.
1. Til hvaða aðgerða hefur ráðherra gripið, eða hyggst grípa til, til að draga úr snemmbæru brotthvarfi nemenda á framhaldsskólastigi?
2. Hvaða greining liggur fyrir á ástæðum snemmbærs brotthvarfs úr framhaldsskólum og hvernig hyggst ráðherra nýta hana við mótun aðgerða?
3. Telur ráðherra áhugavert og skynsamlegt að horfa til fordæma Finna sem lögfestu skólaskyldu til 18 ára aldurs árið 2021, en nýlegar rannsóknir á árangri laganna benda til minna brottfalls og að jákvæð áhrif þeirra séu hlutfallslega meiri meðal drengja, ungmenna af erlendum uppruna og ungmenna með lakari félags- og efnahagslega stöðu?
Munnlegt svar óskast.