Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 267 — 242. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um handverksbrugghús og ÁTVR.
Frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur.
1. Hvaða reglur og viðmið gilda um það hvort vara frá íslenskum handverksbrugghúsum sé tekin til sölu hjá ÁTVR?
2. Hvaða viðmið ráða því í hvaða Vínbúðum vara er seld og hversu mikið hillupláss eða sýnileika hún fær?
3. Eru sérstök úrræði eða skilyrði í vöruvalskerfi ÁTVR sem auðvelda litlum og nýjum íslenskum handverksbrugghúsum að koma vörum sínum á markað, svo sem reynslusala eða sala í tilteknum Vínbúðum?
4. Hefur ráðherra látið meta hvort núverandi reglur og framkvæmd vöruvals skapi smærri eða nýjum íslenskum handverksbrugghúsum meiri aðgangshindranir en rótgrónum framleiðendum eða stórum innflytjendum?
5. Telur ráðherra að breyta þurfi verklagi eða viðmiðum til að litlir íslenskir framleiðendur komist á hillur ÁTVR, svo sem með sérstöku aðgengi að hilluplássi í verslunum í heimabyggð bruggframleiðanda eða breyttu verklagi við að meta hillupláss?
Munnlegt svar óskast.