Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 268 — 243. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um afplánun og endurhæfingu í fangelsum.
Frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur.
1. Hversu margir bíða nú eftir að hefja afplánun fangelsisdóms og hver er meðalbiðtími þeirra? Hvernig hefur fjöldinn og biðtíminn þróast undanfarin ár?
2. Hvaða mælikvarða notar ráðherra til að meta árangur afplánunar og endurhæfingar í fangelsum, m.a. hvað varðar þátttöku í námi, meðferð og endurkomu í fangelsi eftir afplánun?
3. Hver er staðan á mótun heildstæðrar endurhæfingarstefnu með mælanlegum markmiðum?
Munnlegt svar óskast.