Ferill 244. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 269 — 244. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um þrepaskiptan skyldusparnað.
Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.
1. Hver er afstaða ráðherra til þess að tekinn verði upp þrepaskiptur skyldusparnaður í því skyni að draga úr verðbólgu og minnka þörf fyrir vaxtahækkanir?
2. Hefur ráðuneytið tekið hugmyndir um þrepaskiptan skyldusparnað til skoðunar og metið áhrif þess að slíkt úrræði verði tekið upp? Ef svo er, hverjar voru niðurstöðurnar?
Munnlegt svar óskast.