Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 271 — 246. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um aðgerðir vegna rakaskemmda.
Frá Eiríki Birni Björgvinssyni.
Hvernig hefur verið brugðist við og gripið til aðgerða varðandi þær sex aðgerðir þingsályktunar nr. 14/151, um aðgerðir vegna rakaskemmda í fasteignum, sem samþykkt var á Alþingi árið 2021:
a. að auka réttindavernd þeirra sem verða fyrir tjóni vegna rakaskemmda,
b. að efla sjálfstætt eftirlit með prófunum á byggingarefni áður en það er tekið í notkun,
c. að efla þekkingu fagaðila á rakaskemmdum og forvörnum tengdum þeim,
d. að gera upplýsingar um framkvæmdir á húsnæði aðgengilegar á miðlægan hátt,
e. að taka upp jákvæða hvata fyrir tryggingafélög til að tryggja húsnæði gegn rakaskemmdum,
f. að taka upp jákvæða hvata fyrir fasteignaeigendur til að koma í veg fyrir og uppræta rakaskemmdir á eldra húsnæði?
Munnlegt svar óskast.