Ferill 247. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 272 — 247. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um aðgerðir til jöfnunar á ferðakostnaði íþróttafélaga á landsbyggðinni.
Flm.: Þorgrímur Sigmundsson, Ingibjörg Davíðsdóttir.
Greinargerð.
„Skert jafnrétti og öryggi barna í hættu.
Staðan varðandi ferðakostnað landsbyggðarliða er grafalvarleg og stefnir íþróttastarfi í hættu. Íþróttir eiga að vera fyrir öll börn óháð búsetu og efnahag, en vegna kostnaðar er raunverulegt misrétti í gangi sem veldur brottfalli barna úr íþróttum á landsbyggðinni.
Gríðarlegur kostnaður og vanfjármagnaður sjóður.
Í dag brúar Ferðasjóður ÍSÍ ekki þá gjá sem er milli þarfar og veruleika. Árið 2024 nam umsóknarþörfin um 757 millj. kr. en úthlutun var aðeins 123,9 millj. kr. sem þýðir að aðeins var mætt um 16% af þörfinni. Til að mynda getur kostnaður einnar fjölskyldu af landsbyggðinni numið yfir 1,8 millj. kr. á ári vegna keppnisferða barna þeirra.
Öryggi á ferðalögum.
Vegna fjárskorts neyðast íþróttafélög til að velja ódýrari og um leið hættulegri ferðamáta, þar sem rútuferðir og flug eru of dýr. Algengt er að foreldrar keyri níu manna bílaleigubíla langar vegalengdir yfir erfiða fjallvegi í myrkri og hálku, oft dauðþreyttir eftir vinnu eða leiki. Öryggi barna á ekki að velta á því hvort til séu peningar fyrir öruggum ferðamáta.
Fórnarkostnaðurinn.
Auk beins fjárhagskostnaðar er gífurlegur fórnarkostnaður fólginn í því að börn missi úr skóla, foreldrar þurfa að taka sér leyfi frá vinnu til að keyra og iðkendur mæta þreyttir til leiks. Ef landsbyggðarfélögin leggjast af tapast dýrmætur félagsauður, byggðafesta minnkar og lýðheilsa versnar.
Til að stemma stigu við þessari þróun og tryggja jafnt aðgengi allra barna að íþróttum leggur flutningsmaður til að eftirfarandi þrjár lausnir verði innleiddar:
I. Hækkun framlaga í Ferðasjóð ÍSÍ. Stórauka þarf fjármagn í Ferðasjóð ÍSÍ þannig að framlögin endurspegli og fylgi raunkostnaði félaganna vegna eldsneytis, bílaleigu og gistingar. Með því að færa úthlutunina nær raunverulegri þörf (sem var 757 millj. kr. árið 2024) er verið að jafna þennan mikla aðstöðumun og létta fjárhagslegri byrði af fjölskyldum á landsbyggðinni.
II. Íþróttaloftbrú. Koma þarf á „Íþróttaloftbrú“ að fyrirmynd almennu Loftbrúarinnar. Þessi brú myndi tryggja iðkendum og liðum fastan, verulegan afslátt af flugferðum í keppnisferðir. Þetta myndi gjörbreyta ferðatíma, fækka þeim dögum sem börn missa úr skóla, lágmarka vinnutap foreldra og síðast en ekki síst stórbæta öryggi iðkenda.
III. Ríflegur skattafsláttur og tækjastyrkir fyrir íþróttafélög (almannaheillafélög). Veittar verði skattaívilnanir og styrkir til íþróttafélaga sem skráð eru á almannaheillaskrá, t.d. í formi afsláttar af virðisaukaskatti og eldsneytisgjöldum á bílaleigubílum. Auk þess verði komið á laggirnar ríflegum og stórauknum tækjastyrkjum eða skattafsláttum vegna kaupa á eigin öruggum 9–15 manna bílum fyrir félögin. Þessi skattafsláttur verði hækkaður verulega og beint eyrnamerktur til niðurgreiðslu ferðakostnaðar eða nýttur til uppbyggingar á íþróttamannvirkjum. Einnig væri hægt að hvetja fyrirtæki enn frekar til að styrkja ferðasjóði slíkra félaga með því að bjóða þeim upp á aukinn skattfrádrátt á móti framlögum sínum.“