Ferill 250. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 275  —  250. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um nýtingu á fæðingarorlofi feðra.

Frá Rögnu Sigurðardóttur.


     1.      Hvernig hefur fæðingarorlofstaka feðra þróast frá því að þeim var tryggður sjálfstæður réttur til fæðingarorlofs?
     2.      Hvaða aðgerðir telur ráðherra helst til þess fallnar að styðja feður til að hefja töku fæðingarorlofs og nýta allan sjálfstæðan rétt sinn, þar á meðal fræðsla, sveigjanleiki í töku orlofs, afkomuöryggi og réttindavernd á vinnustað?
     3.      Hyggst ráðherra grípa til aðgerða eða láta kanna hvort breytinga sé þörf til að auðvelda feðrum að nýta rétt sinn?


Munnlegt svar óskast.