Ferill 251. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 276  —  251. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um sjókvíaeldisleyfi, verðmæti þeirra og endurgjald fyrir auðlindanýtingu.

Frá Degi B. Eggertssyni.


     1.      Hvaða leyfi til sjókvíaeldis við Ísland hafa verið gefin út? Óskað er eftir yfirliti yfir öll útgefin rekstrarleyfi, sundurliðað eftir leyfishöfum, eldissvæðum, umfangi leyfilegs hámarkslífmassa, útgáfudegi og gildistíma. Jafnframt komi fram hvaða leyfi hafa verið endurnýjuð, framseld, felld úr gildi eða sæta takmörkunum á nýtingu og hvaða leyfum hefur verið breytt.
     2.      Hvaða greiðslur hafa komið til hins opinbera vegna útgáfu og nýtingar sjókvíaeldisleyfa? Svar óskast sundurliðað eftir greiðslum við úthlutun, breytingar og endurnýjun leyfa annars vegar og eftir innheimtu á fiskeldisgjaldi, umhverfissjóðsgjaldi og öðrum sértækum gjöldum hins vegar. Þá óskast svar sundurliðað eftir fyrirtækjum, tegund gjalda og árum frá upphafi viðkomandi gjaldtöku. Sérstaklega komi fram hvort og þá hvaða endurgjald hafi verið greitt fyrir nýtingarréttinn sjálfan við úthlutun eða í tengslum við úthlutun leyfanna umfram lögbundin þjónustu- og eftirlitsgjöld.
     3.      Hvaða upplýsingar liggja fyrir um bókfært verðmæti sjókvíaeldisleyfa í reikningum viðkomandi fyrirtækja og móðurfélaga þeirra, innlendum og erlendum? Óskað er eftir yfirliti sem byggist á nýjustu birtu ársreikningum og þar sem sýnt er sérstaklega bókfært virði leyfa, viðskiptavild og annað fyrirliggjandi verðmat réttindanna. Jafnframt komi fram hvort ráðuneytið hafi látið meta markaðsvirði útgefinna leyfa eða aflað upplýsinga um verðmæti þeirra við kaup og sölu fyrirtækja eða réttinda.
     4.      Hvaða leiðir telur ráðherra heppilegastar til að tryggja að þjóðin fái eðlilegan arð af sjókvíaeldisleyfum sem veita aðgang að takmarkaðri auðlind? Hefur ráðuneytið metið kosti og galla þess að úthluta nýjum leyfum eða endurnýja eldri leyfi gegn endurgjaldi, svo sem með uppboðum, útboðum eða öðrum samkeppnisleiðum, eftir atvikum samhliða reglubundnu auðlindagjaldi? Ef svo er, hverjar voru niðurstöður þess mats og hvaða áform hefur ráðherra um að tryggja eðlilegt endurgjald fyrir aðgang að viðkomandi auðlindum í samræmi við stefnu stjórnvalda um mótun auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld sem renni að hluta til nærsamfélagsins?


Skriflegt svar óskast.