Ferill 252. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 277 — 252. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um gangagerð.
Frá Eydísi Ásbjörnsdóttur.
1. Hver er staða rannsókna og undirbúnings vegna Fljótaganga og hvenær er gert ráð fyrir að niðurstöður rannsókna og ákvarðanir um framhald liggi fyrir?
2. Hvaða þýðingu telur ráðherra að Fljótagöng muni hafa fyrir öryggi íbúa og atvinnulíf á svæðinu?
3. Hver er staða rannsókna á Fjarðagöngum og hvaða næstu áfangar eru fyrirhugaðir?
4. Hvaða þýðingu telur ráðherra að Fjarðagöng muni hafa fyrir öryggi íbúa og atvinnulíf á svæðinu?
5. Hver er staða undirbúnings fyrir Súðavíkurgöng?
6. Hvaða þýðingu telur ráðherra að Súðavíkurgöng muni hafa fyrir öryggi íbúa og atvinnulíf á svæðinu?
Munnlegt svar óskast.