Ferill 253. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 278  —  253. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hver eru áform ráðherra um framtíð starfs samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs?
     2.      Hefur farið fram endurskoðun á lögum nr. 45/2019, um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, í samræmi við ákvæði til bráðabirgða II? Ef svo er, hverjar voru helstu niðurstöður endurskoðunarinnar og hvaða hagsmunaaðilar komu að henni?
     3.      Hvenær rennur út núgildandi samningur ráðuneytisins við þann aðila sem sinnir starfi samskiptaráðgjafa? Hefur samningnum verið sagt upp eða ákvörðun tekin um að framlengja hann ekki og ef svo er, á hvaða forsendum?
     4.      Hefur ráðherra tekið ákvörðun, eða eru uppi áform, um að breyta fyrirkomulagi starfs samskiptaráðgjafa, færa verkefni hans til annars aðila eða leggja starfið niður? Ef svo er, í hverju felast fyrirhugaðar breytingar?
     5.      Hvaða samráð hefur átt sér stað við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og önnur íþrótta- og æskulýðssamtök um framtíð starfs samskiptaráðgjafa?



Skriflegt svar óskast.