Ferill 254. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 279 — 254. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um skattlagningu auglýsingatekna alþjóðlegra tæknifyrirtækja.
Frá Valdimar Breiðfjörð Birgissyni.
1. Hvernig miðar vinnu við að fara yfir leiðir til að skattleggja íslenskt auglýsingafé alþjóðlegra tæknifyrirtækja, samfélagsmiðla og leitarvéla, sbr. aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum fjölmiðla?
2. Hefur verið skoðað að fara í sameiginlegar aðgerðir með öðrum ríkjum? Ef svo er, hvaða ríkjum og ef svo er ekki, hyggjast stjórnvöld ráðast í þessar aðgerðir ein og sér og hver er áætlaður tímarammi á þeirri aðgerð?
3. Hvað er gert ráð fyrir að þessi skattlagning skili miklum tekjum til ríkissjóðs?
4. Mun samsvarandi upphæð og innheimtist frá erlendum miðlum, t.d. fjölmiðlum, samfélagsmiðlum, leitarvélum og gervigreindarfyrirtækjum, renna í sjóð til styrktar einkareknum fjölmiðlum?
Munnlegt svar óskast.