Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 284 — 3. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um menningarminjar og lögum um mannvirki (álit Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja).
(Eftir 2. umræðu, 21. okt.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012.
1. gr.
a. Í stað orðanna „sem ekki njóta friðunar en byggð voru 1940 eða fyrr, svo og forráðamönnum kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, er skylt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands með minnst sex vikna fyrirvara“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: svo og forráðamönnum kirkna, sem ekki njóta friðunar, er heimilt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands.
b. 2. mgr. orðast svo:
Byggingarfulltrúum er heimilt að gera að skilyrði að eigendur húsa og mannvirkja, svo og forráðamenn kirkna, leiti eftir áliti Minjastofnunar Íslands áður en leyfi er veitt til framkvæmda.
c. 3. mgr. orðast svo:
Hafi álits Minjastofnunar Íslands verið leitað á grundvelli 1. mgr. eða byggingarfulltrúi gert kröfu þar um skv. 2. mgr. skal það liggja fyrir áður en byggingarleyfi er veitt vegna viðkomandi framkvæmdar. Við afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi skal taka tillit til skilyrða sem Minjastofnun leggur til í áliti sínu. Sama á við um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt skipulagslögum.
II. KAFLI
Breyting á lögum um mannvirki, nr. 160/2010.
2. gr.
Áður en gefið er út byggingarleyfi fyrir mannvirki skal gætt, eftir því sem við á, ákvæða IV., VI. og VII. kafla laga um menningarminjar, nr. 80/2012.
3. gr.