Ferill 260. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 286 — 260. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um umönnunargreiðslur.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Vegna hversu margra barna voru greiddar umönnunargreiðslur og hver var árleg heildarupphæð þeirra á árunum 2010–2025? Óskað er sundurliðunar eftir umönnunarflokki, fæðingarlandi barns og fæðingarlandi foreldra.
2. Hvað skýrir þróunina? Hafa orðið breytingar á fjölda greininga, stuðningsþörf barna, reglum um umönnunarmat og greiðslum eða greiðslufjárhæðum?
Skriflegt svar óskast.