Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 287 — 261. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um mótefnagjöf gegn RS-veiru.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hvaða faglegu og vísindalegu forsendur liggja til grundvallar þeirri ákvörðun að almenn mótefnagjöf gegn RS-veiru nái ekki til barna sem fædd eru í apríl?
2. Hvers vegna var miðað við 1. maí fremur en 1. apríl eða aðra dagsetningu þegar aldursmörk vegna mótefnagjafar voru ákvörðuð?
3. Hvernig samræmist fullyrðing ráðherra í svari á þskj. 271 á 157. löggjafarþingi um að sjaldgæft sé að mikið sé um RS-veirusýkingar eftir 1. apríl þeirri forsendu að börn fædd í apríl teljist hafa gengið í gegnum sitt fyrsta RS-tímabil og þurfi því ekki á mótefnagjöf að halda vegna nk. veturs?
4. Hefur verið gert sérstakt áhættumat vegna barna sem fædd eru í apríl, m.a. með tilliti til þess hvort þau hafi í raun verið útsett fyrir RS-veiru á fyrsta RS-tímabili sínu? Ef svo er, hverjar eru niðurstöður þess mats?
5. Hversu mörg börn undir eins árs aldri hafa þurft á sjúkrahúsinnlögn að halda vegna RS-veirusýkinga síðustu fimm ár, sundurliðað eftir fæðingarmánuði og aldri við innlögn?
6. Hvernig samræmast íslenskar viðmiðunarreglur um aldur barna sem hljóta mótefnagjöf gegn RS-veiru alþjóðlegum ráðleggingum, m.a. frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og bandarísku sóttvarnastofnuninni (CDC), og hefur verið metið hvort ástæða sé til að víkka aldursmörkin?
7. Hver væri áætlaður árlegur kostnaður við að veita öllum börnum fæddum í apríl mótefnagjöf gegn RS-veiru og hefur verið lagt mat á mögulegan ávinning slíkrar gjafar, m.a. vegna færri veikinda og sjúkrahúsinnlagna?
8. Hyggst ráðherra endurskoða fyrirkomulag mótefnagjafar gegn RS-veiru þannig að börn fædd í apríl njóti sömu verndar og önnur börn á fyrsta RS-tímabili sínu?
Skriflegt svar óskast.