Ferill 272. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 298  —  272. mál.



                             

Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um laun, kostnað og önnur starfskjör ráðherra.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hver hafa heildarlaun ráðherra og fastar mánaðarlegar kostnaðargreiðslur til hans verið á yfirstandandi kjörtímabili?
     2.      Hver hefur annar starfskostnaður ráðherra verið, sundurliðað í síma- og netkostnað, rekstrarkostnað ráðherrabifreiðar og annað?
     3.      Hver hefur ferðakostnaður ráðherra innan lands verið?
     4.      Hver hefur kostnaður vegna vinnuferða ráðherra til útlanda verið? Óskað er eftir að fram komi dagsetning, áfangastaður, tilefni, fjöldi í föruneyti og heildarkostnaður hverrar ferðar, sundurliðað í fargjöld, gisti- og fæðiskostnað, dagpeninga, kostnað vegna maka og annan kostnað.
     5.      Hver hafa önnur starfskjör ráðherra verið og aðrar greiðslur til hans eða vegna hans, ef einhverjar eru?
     6.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að framangreindar upplýsingar verði birtar reglulega á vef Stjórnarráðsins? Ef svo er, hvenær?
    Svar við 1.–4. tölul. óskast sundurliðað eftir mánuðum og árum með sambærilegum hætti og Alþingi birtir upplýsingar um laun og kostnaðargreiðslur alþingismanna á vef sínum. Svar óskast einnig sundurliðað eftir því hver greiðandinn er.


Skriflegt svar óskast.