Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Prentað upp.
Þingskjal 299 — 273. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um birtingu upplýsinga um laun og kostnaðargreiðslur ráðherra.
Flm.: Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Þorgrímur Sigmundsson.
Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra, í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra, að tryggja að ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands birti opinberlega upplýsingar um laun ráðherra og kostnaðargreiðslur til þeirra og vegna þeirra. Upplýsingarnar verði birtar á vef Stjórnarráðsins, sundurliðaðar eftir ráðherrum, mánuðum og árum, með sambærilegum hætti og Alþingi birtir upplýsingar um laun og kostnaðargreiðslur alþingismanna. Birtingin verði heildstæð, þannig að á einum stað komi fram allar greiðslur til hvers ráðherra og vegna hans, óháð því hvort þær eru greiddar af ráðuneyti, Alþingi eða öðrum aðila, ásamt samtölu.
Birtar verði a.m.k. upplýsingar um:
1. heildarlaun ráðherra,
2. fastar mánaðarlegar kostnaðargreiðslur,
3. annan starfskostnað, þ.m.t. rekstrarkostnað ráðherrabifreiðar,
4. ferðakostnað innan lands,
5. ferðakostnað utan lands, sundurliðaðan eftir fargjöldum, gisti- og fæðiskostnaði, dagpeningum og öðrum kostnaði, auk kostnaðar vegna maka sem ríkið greiðir,
6. síma- og netkostnað,
7. vinnuferðir ráðherra til útlanda, hverja fyrir sig, með dagsetningu, áfangastað, tilefni, fjölda í föruneyti og heildarkostnaði ferðarinnar,
8. önnur starfskjör ráðherra og aðrar greiðslur til þeirra eða vegna þeirra ef einhverjar eru.
Upplýsingarnar verði fyrst birtar eigi síðar en 1. júlí 2027, nái a.m.k. aftur til alþingiskosninga 30. nóvember 2024 og verði uppfærðar mánaðarlega.
Greinargerð.
Markmið tillögunnar er að ráðherrar búi við sama gagnsæi um laun og kostnað og alþingismenn. Almenningur á rétt á að vita hvað ráðherrar fá greitt af opinberu fé og í hvað það fer.
Alþingi hefur birt laun og kostnaðargreiðslur þingmanna á vef sínum frá árinu 2018. Þar má sjá fastar greiðslur hvers þingmanns, sundurliðun eftir árum og mánuðum og þátttöku hans í alþjóðastarfi. Sambærilegar upplýsingar um ráðherra eru hvergi birtar.
Núverandi fyrirkomulag.
Um laun og kjör alþingismanna gilda lög um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995. Alþingi greiðir ráðherrum húsnæðis- og dvalarkostnað samkvæmt þeim lögum, en ráðuneyti greiða ráðherrum laun og annan þingfararkostnað sem fellur undir 7.–9. gr. laganna. Á vef Alþingis eru eingöngu sýndar greiðslur frá Alþingi sjálfu.
Birting á vef Alþingis hófst árið 2018. Með ákvörðun forsætisnefndar 9. apríl 2018 voru jafnframt birtar upplýsingar aftur til alþingiskosninga árið 2007 eftir að leitað var álits Persónuverndar.
Árið 2019 var lögum um Stjórnarráð Íslands breytt þannig að ráðherra sem fer með starfsmannamál ríkisins setur almennar reglur um starfskostnað og starfskjör ráðherra í samráði við forsætisráðherra. Í þeim reglum skal gæta samræmis við lög um þingfararkaup og reglur forsætisnefndar. Reglur um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra tóku fyrst gildi haustið 2020 og núgildandi reglur eru frá 13. ágúst 2021. Reglurnar fjalla um réttindi ráðherra en ekki um birtingu upplýsinga.
Upplýsingar um kostnað ráðherra hafa hingað til einkum fengist með skriflegum fyrirspurnum, ráðuneyti fyrir ráðuneyti, og svör hafa iðulega tafist.
Efni og framkvæmd birtingar.
Lagt er til að birtingin fylgi sömu uppsetningu og á vef Alþingis. Fyrir hvern ráðherra verði birtar fastar mánaðarlegar greiðslur og yfirlit sundurliðað eftir árum og mánuðum. Einnig verði birt tafla yfir vinnuferðir ráðherra til útlanda.
Mikilvægt er að allar greiðslur komi fram á einum stað, sundurliðaðar eftir greiðanda og með samtölu. Greiðslur til ráðherra koma nú bæði frá Alþingi og ráðuneytum. Almenningur á ekki að þurfa að sækja upplýsingar á vef bæði Alþingis og Stjórnarráðsins og leggja saman til að sjá hvað hver ráðherra fær greitt.
Auk þeirra liða sem Alþingi birtir er lagt til að birtur skuli rekstrarkostnaður ráðherrabifreiða og kostnaður vegna maka. Þessir liðir eiga ekki við um þingmenn en eru hluti af kostnaði við ráðherraembætti.
Forsætisráðuneyti samræmi framsetningu milli ráðuneyta. Gögn liggja þegar fyrir í bókhaldi ráðuneyta og hjá Fjársýslu ríkisins og ætti kostnaður við birtingu því að verða hóflegur.
Ferðir ráðherra.
Á vef Alþingis er birt tafla yfir þátttöku hvers þingmanns í alþjóðastarfi með dagsetningu, stað og tilefni. Lagt er til að sambærileg tafla verði birt yfir vinnuferðir ráðherra til útlanda. Þar sem ráðherrar ferðast jafnan með föruneyti verði einnig tilgreindur fjöldi í för og heildarkostnaður hverrar ferðar. Slíkra upplýsinga hefur ítrekað verið óskað með fyrirspurnum á Alþingi.
Kostnaður vegna ferða innan lands verði birtur sem samtala eftir mánuðum líkt og hjá þingmönnum. Ef ríkir öryggis- eða varnarhagsmunir krefjast megi takmarka upplýsingar um einstakar ferðir en kostnaður vegna þeirra skuli þó ávallt koma fram í samtölu ásamt fjölda ferða sem birtar eru með takmörkuðum upplýsingum.
Lokaorð.
Tillagan krefst hvorki lagabreytinga né verulegra fjárveitinga. Hún felur í sér að framkvæmdarvaldið taki upp sömu vinnubrögð og Alþingi hefur viðhaft frá árinu 2018. Verði tillagan samþykkt þurfa þingmenn ekki lengur að biðja hvert ráðuneyti fyrir sig um þessar upplýsingar. Ráðherrar eiga ekki að búa við minna gagnsæi um ráðstöfun opinberra fjármuna en þingmenn.