Ferill 274. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 301  —  274. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um mannanöfn, nr. 45/1996 (nafnbreyting).

Flm.: Sigurður Helgi Pálmason, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Bergþór Ólason, Dagur B. Eggertsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Halla Hrund Logadóttir, Hildur Sverrisdóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Gnarr, Jónína Björk Óskarsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólafur Adolfsson, Sigurjón Þórðarson, Snorri Másson, Víðir Reynisson, Þórarinn Ingi Pétursson.


1. gr.

    Á eftir 17. gr. laganna kemur ný grein, 17. gr. a, svohljóðandi:
    Hafi maður hlotið óskilorðsbundinn refsidóm fyrir alvarlegt brot gegn ákvæðum almennra hegningarlaga og verið gert að sæta fangelsi í 3 ár eða lengur er heimilt að synja beiðni hans um nafnbreytingu samkvæmt lögum þessum, enda hafi skráðar upplýsingar um dóminn ekki verið afmáðar úr sakaskrá hans og ástæða er til að ætla að nafnbreyting kunni að stofna réttindum annarra í hættu í ljósi sakaferils umsækjanda.
    Til að staðreyna hvort 1. mgr. eigi við er Þjóðskrá Íslands heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá, enda liggi fyrir samþykki umsækjanda.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður lagt fram á 157. löggjafarþingi ( 698. mál). Það er nú lagt fram að nýju með breytingum sem gerðar hafa verið með hliðsjón af athugasemdum sem bárust við fyrri meðferð málsins. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, sem miða að því að vernda réttindi þeirra sem kunna að verða fyrir áhrifum af nafnbreytingu í afmörkuðum tilvikum.
    Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 45/1996 er kveðið á um að Þjóðskrá Íslands sé heimilt að leyfa manni breytingu á eiginnafni og/eða millinafni ef telja verður að ástæður mæli með því. Sambærilegt ákvæði er að finna í 16. gr. laganna sem segir að Þjóðskrá Íslands sé heimilt að leyfa manni eldri en 18 ára að taka upp nýtt kenninafn ef telja verður að gildar ástæður mæli með því. Núgildandi lög um mannanöfn gera þannig ráð fyrir að einstaklingi sé almennt heimilt að breyta um nafn, að því tilskildu að gildar ástæður mæli með því. Við mat á því hvort slíkar ástæður séu fyrir hendi hefur í framkvæmd fyrst og fremst verið litið til hagsmuna umsækjanda. Réttindi annarra koma því almennt ekki til skoðunar við ákvörðun um nafnbreytingu. Af þessu leiðir að þó að ástæða sé til að ætla að nafnbreyting kunni að stofna réttindum annarra í hættu skortir stjórnvöld lagaheimild til að synja beiðni um nafnbreytingu á þeim grundvelli. Þetta getur haft sérstaka þýðingu í þeim tilvikum þegar umsækjandi á að baki sakaferil sem er þess eðlis að ástæða er til að ætla að fyrirhuguð nafnbreyting geti haft í för með sér aukna áhættu fyrir aðra. Þótt nafnbreytingar geti verið liður í enduraðlögun einstaklinga að samfélaginu að lokinni afplánun hafa komið upp mál hér á landi sem varpað hafa ljósi á þá hættu sem kann að skapast fyrir aðra þegar einstaklingur með sögu um alvarlega ofbeldishegðun misnotar heimildina. Slík misnotkun kann m.a. að felast í því að nafnbreyting sé nýtt til að leyna fyrri brotaferli og villa þannig um fyrir öðrum, eftir atvikum með það að markmiði að skapa aðstæður fyrir endurtekin brot. Sérstakar áhyggjur vakna þegar slík háttsemi kann að ógna öryggi barna og annarra einstaklinga í viðkvæmri stöðu, þar á meðal þeirra sem áður hafa orðið fyrir líkamlegu, kynferðislegu eða andlegu ofbeldi.
    Sambærileg mál hafa einnig komið upp annars staðar á Norðurlöndum og orðið tilefni til umræðu um hvort takmarka eigi heimildir einstaklinga með alvarlegan brotaferil til nafnbreytinga. Má í því sambandi nefna mál einstaklings í Danmörku sem hafði árið 2011 hlotið sjö ára fangelsisdóm fyrir alvarleg kynferðis- og ofbeldisbrot gegn tveimur konum. Að lokinni afplánun tók hann upp nýtt nafn. Árið 2019 var hann handtekinn á ný og ákærður fyrir þrjú manndráp í Kaupmannahöfn. Málið vakti mikla athygli í Danmörku og varð til þess að þingmenn Danska þjóðarflokksins (d. Dansk Folkeparti) lögðu fram þingsályktunartillögu (B 40/2019) um að takmarka heimildir dæmdra einstaklinga til nafnbreytinga. Samkvæmt tillögunni skyldi einstaklingum sem hlotið hefðu meira en þriggja mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm óheimilt að breyta um nafn frá því að dómur væri kveðinn upp og þar til upplýsingar um hann væru ekki lengur skráðar á sakaskrá viðkomandi. Í greinargerð með tillögunni var lögð áhersla á að megintilgangur hennar væri að auka öryggi almennings. Flutningsmenn töldu að nafnbreytingar gætu gert einstaklingum sem hlotið hefðu dóma fyrir alvarleg brot kleift að leyna fyrri brotahegðun og komast þannig í náin kynni við aðra án þess að þeim væri kunnugt um fortíð viðkomandi. Að mati þeirra gæti slíkt aukið hættu á endurteknum brotum og torveldað almenningi að gera viðeigandi varúðarráðstafanir. Tillögunni var því fyrst og fremst ætlað að vernda almenning með því að takmarka heimildir einstaklinga með alvarlegan brotaferil til nafnbreytinga.
    Frumvarpi þessu er ætlað að bregðast við framangreindum annmörkum gildandi laga með því að tryggja stjórnvöldum lagaheimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá umsækjenda við meðferð beiðna um nafnbreytingu svo unnt sé að leggja mat á hvort viðkomandi hafi gerst sekur um refsiverða háttsemi sem sé þess eðlis að ástæða sé til að ætla að nafnbreyting kunni að stofna réttindum annarra í hættu. Með þessu er leitast við að tryggja að réttindi annarra komi einnig til skoðunar við ákvörðun um nafnbreytingu. Með frumvarpinu er enn fremur lagt til að stjórnvöldum verði heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu þegar fyrirliggjandi upplýsingar um sakaferil umsækjanda gefa tilefni til að ætla að nafnbreyting kunni að stofna réttindum annarra í hættu. Markmið frumvarpsins felst fyrst og fremst í því að vernda réttindi þeirra sem kunna að verða fyrir áhrifum af nafnbreytingu við þær aðstæður sem frumvarpið tekur til. Er hér einkum horft til barna og fullorðinna einstaklinga í viðkvæmri stöðu, þar á meðal þeirra sem áður hafa orðið fyrir líkamlegu, kynferðislegu eða andlegu ofbeldi. Frumvarpinu er einnig ætlað að draga úr hættu á misnotkun heimildar til nafnbreytingar og bregðast við vaxandi áhyggjum almennings af slíkri hættu. Frumvarpið er samið með hliðsjón af sambærilegum tillögum að lagabreytingum sem ræddar hafa verið og lagðar fram annars staðar á Norðurlöndum.

Samræmi við stjórnarskrána og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Við samningu frumvarpsins var sérstaklega skoðað hvort efni þess samræmdist ákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins, þar á meðal ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.
    Í frumvarpinu er lagt til að stjórnvöldum verði heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu í þeim tilvikum þar sem umsækjandi á að baki sakaferil sem gefur tilefni til að ætla að nafnbreytingin kunni að stofna réttindum annarra í hættu. Frumvarpið felur því í sér ákveðna takmörkun á rétti einstaklinga til að ráða nafni sínu og komu ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu því til skoðunar.
    Samkvæmt 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar skulu allir njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Hugtakið einkalíf er nokkuð víðtækt og er í raun safnheiti sem nær bæði yfir heimili og fjölskyldu, en að auki tekur það til alls þess sem lýtur að persónulegum högum einstaklings, svo sem auðkenni, sjálfsmynd og því sem einkennir hann sem persónu gagnvart umhverfi sínu og öðrum í samfélaginu. Réttur einstaklings til að ráða nafni sínu nýtur því verndar 71. gr. stjórnarskrárinnar. Friðhelgi einkalífs eru þó settar ýmsar takmarkanir og er skilyrðum þeirra nánar lýst í 2. og 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar. Í 3. mgr. 71. gr. er að finna almenna reglu um takmarkanir á friðhelgi réttinda sem falla undir ákvæðið. Samkvæmt henni má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.
    Við skýringu 71. gr. stjórnarskrárinnar hefur m.a. verið litið til 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Í 1. mgr. þeirrar greinar er kveðið á um að sérhver maður eigi rétt til friðhelgi einkalífs síns, fjölskyldu, heimilis og bréfaskipta. Þá segir í 2. mgr. að opinber stjórnvöld skuli eigi ganga á rétt þennan nema samkvæmt því sem lög mæla fyrir um og nauðsyn beri til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis, almannaheilla eða efnalegrar farsældar þjóðarinnar, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra. Takmarkanir á friðhelgi einkalífs í þágu markmiða á borð við þau sem talin eru upp í 2. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu hafa verið taldar heimilar, þrátt fyrir að þau séu ekki talin upp í sjálfu stjórnarskrárákvæðinu, sbr. Hrd. 1989, bls. 28, nr. 5/1989.
    Í 1. gr. frumvarpsins kemur skýrt fram hvenær synjun á grundvelli ákvæðisins getur komið til álita. Samkvæmt ákvæðinu þarf umsækjandi að hafa hlotið óskilorðsbundinn refsidóm fyrir alvarlegt brot gegn ákvæðum almennra hegningarlaga og verið gert að sæta fangelsi í 3 ár eða lengur. Jafnframt er áskilið að upplýsingar um dóminn hafi ekki verið afmáðar úr sakaskrá hans og að ástæða sé til að ætla að nafnbreytingin kunni að stofna réttindum annarra í hættu. Ákvæðið tekur þannig aðeins til afmarkaðra tilvika og mælir fyrir um þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt svo að synjun á þessum grundvelli komi til greina. Sú takmörkun sem frumvarpið mælir fyrir um hvílir því á skýrri og viðhlítandi lagaheimild, svo sem áskilið er í 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar.
    Eins og áður hefur komið fram er markmið frumvarpsins að vernda réttindi þeirra sem kunna að verða fyrir áhrifum af nafnbreytingu við þær aðstæður sem frumvarpið tekur til. Frumvarpinu er einnig ætlað að draga úr hættu á misnotkun heimildar til nafnbreytingar og bregðast við vaxandi áhyggjum almennings af slíkri hættu. Takmörkun sú sem lögð er til í frumvarpinu þjónar því lögmætum markmiðum sem samræmast ákvæðum 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
    Í ljósi þess að gildandi lög veita stjórnvöldum ekki fullnægjandi heimild til að bregðast við þegar fyrirliggjandi upplýsingar gefa sérstakt tilefni til að ætla að nafnbreyting kunni að stofna réttindum annarra í hættu er talið nauðsynlegt að lögfesta afmarkaða heimild sem gerir stjórnvöldum kleift að taka tillit til slíkra sjónarmiða við afgreiðslu beiðna um nafnbreytingu.
    Til að gæta meðalhófs er lagt til að frumvarpið feli í sér heimild en ekki fortakslausa skyldu stjórnvalda til að synja beiðni um nafnbreytingu í þeim tilvikum sem það tekur til. Frumvarpið á þar að auki aðeins við frá dómsuppsögu þar til upplýsingar um viðkomandi dóm hafa verið afmáðar úr sakaskrá umsækjanda. Að þeim tíma liðnum fer um beiðni um nafnbreytingu samkvæmt almennum reglum laga um mannanöfn og útilokar frumvarpið því ekki að umsækjandi geti síðar breytt um nafn að uppfylltum almennum skilyrðum laganna. Með þessu er leitast við að tryggja að ekki sé gengið lengra en nauðsynlegt er til að ná markmiðum frumvarpsins.
    Frumvarpið hefur einnig verið skoðað með hliðsjón af jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Í því sambandi hefur einkum þýðingu að sú takmörkun sem frumvarpið mælir fyrir um er bundin almennum og hlutlægum viðmiðum sem eiga jafnt við um alla sem eru í sambærilegri stöðu. Við beitingu ákvæða þess verður þannig ekki byggt á persónubundnum sjónarmiðum heldur á eðli og alvarleika brots, þyngd refsingar, skráningu dóms í sakaskrá og mati á því hvort ástæða sé til að ætla að nafnbreyting kunni að stofna réttindum annarra í hættu.
    Með hliðsjón af framangreindu er talið að frumvarpið samrýmist stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Með greininni er lagt til að nýtt ákvæði, 17. gr. a, verði tekið upp í lög um mannanöfn, nr. 45/1996. Í 1. mgr. er stjórnvöldum veitt heimild til að synja beiðni um nafnbreytingu í afmörkuðum tilvikum. Skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins eru að umsækjandi hafi hlotið óskilorðsbundinn refsidóm fyrir alvarlegt brot gegn almennum hegningarlögum og verið gert að sæta fangelsi í 3 ár eða lengur. Þá er jafnframt áskilið að upplýsingar um dóminn hafi ekki verið afmáðar úr sakaskrá umsækjanda og að ástæða sé til að ætla að nafnbreyting kunni að stofna réttindum annarra í hættu í ljósi sakaferils umsækjanda.
    Ákvæðinu er ætlað að ná til þeirra sem sætt hafa hegningu fyrir meiri háttar brot samkvæmt almennum hegningarlögum, svo sem manndráp, stórfellda líkamsárás, kynferðisbrot eða sambærileg brot. Gildissvið ákvæðisins takmarkast þannig við alvarlega refsiverða hegðun sem framin er af ásetningi. Brot sem rekja má til gáleysis eða varða einungis sektum falla því utan gildissviðs þess. Þar að auki er ráðgert að ákvæðið gildi aðeins frá dómsuppkvaðningu þar til dómur er felldur út af sakaskrá umsækjanda. Að þeim tíma liðnum fer um beiðni um nafnbreytingu samkvæmt almennum reglum laga um mannanöfn. Ákvæðið útilokar því ekki að viðkomandi geti síðar breytt um nafn að uppfylltum almennum skilyrðum laganna.
    Með réttindum annarra í skilningi 1. mgr. er átt við réttindi á borð við friðhelgi einkalífs, þar á meðal vernd gegn líkamlegu, kynferðislegu og andlegu ofbeldi sem leiða má af 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í dæmaskyni má einnig nefna rétt barna til þeirrar verndar og umönnunar sem velferð þeirra krefst skv. 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar. Við mat á því hvort sakaferill umsækjanda gefi tilefni til að ætla að nafnbreyting kunni að stofna réttindum annarra í hættu skal m.a. líta til eðlis og alvarleika þess brots sem umsækjandi hefur verið sakfelldur fyrir, hvort um ítrekaða háttsemi hafi verið að ræða og þess tíma sem liðinn er frá broti. Í þessu sambandi er sérstaklega horft til verndar barna og fullorðinna einstaklinga í viðkvæmri stöðu, þar á meðal þeirra sem áður hafa orðið fyrir líkamlegu, kynferðislegu eða andlegu ofbeldi.
    Í 2. mgr. er lagt til að Þjóðskrá Íslands verði heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá við meðferð beiðna um nafnbreytingu að því marki sem nauðsynlegt er til að meta hvort 1. mgr. eigi við, enda liggi fyrir samþykki umsækjanda. Með því að áskilja samþykki umsækjanda er tryggt að upplýsingaöflun úr sakaskrá fari ekki fram nema með vitund hans.

Um 2. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringa.