Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 303  —  275. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um tölfræði um stöðu hópa eftir þjóðerni.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hefur afstaða ráðuneytisins breyst síðan fyrirspurn á 154. löggjafarþingi (1021. mál) um opinbera gagnasöfnun í anda Det Nationale Integrationsbarometer var svarað en þar kom fram að ráðuneytið hefði ekki í hyggju að safna umfangsmeiri tölfræði um stöðu hópa eftir þjóðerni en þá var gert?
     2.      Telur ráðherra mikilvægt að hægt sé að greina með ítarlegum hætti tekjur, eignir, skuldir og framlög einstaklinga til hins opinbera o.fl. líkt og gert er í nágrannalöndum okkar? Ef svo er ekki, hvers vegna?


Skriflegt svar óskast.