Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 306  —  278. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um kaup sérsveitar lögreglu á búnaði og kostnað vegna hans.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.


     1.      Hver er nauðsynlegur búnaður sérsveitar lögreglu og hver er árlegur kostnaður vegna hans?
     2.      Hvert er mat ráðherra á bráðaþörf sérsveitarinnar við núverandi aðstæður? Óskað er eftir upplýsingum um búnað og fjárþörf á yfirstandandi ári.
     3.      Hver eru áætluð búnaðarkaup sérsveitarinnar næstu þrjú árin? Óskað er eftir yfirliti yfir tegund búnaðar ásamt fjárhæðum.
     4.      Er einhver búnaður sem mætti samnýta með öðrum lögregludeildum eða Landhelgisgæslunni?


Skriflegt svar óskast.