Ferill 76. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 308 — 76. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum og búnaðarlögum (framlenging búvörusamninga).
Frá atvinnuveganefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Samtökum fyrirtækja í landbúnaði og Samtökum iðnaðarins.
Með frumvarpinu er mælt fyrir um breyttan gildistíma búvörusamninga í ákvæðum búvörulaga og búnaðarlaga. Lögð eru til breytt ártöl í búvörulögum auk bráðabirgðaákvæðis í búnaðarlögum.
Fyrir liggur samkomulag milli atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra annars vegar og Bændasamtaka Íslands hins vegar þess efnis að núgildandi búvörusamningar verði framlengdir til 31. desember 2027 á meðan samningsviðræður milli aðila standa yfir.
Nefndinni bárust tvær umsagnir um málið, frá Bændasamtökum Íslands og sameiginleg umsögn frá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði og Samtökum iðnaðarins. Báðar umsagnir eru jákvæðar um málið og hvetja umsagnaraðilar Alþingi til að afgreiða málið.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Kristján Þórður Snæbjarnarson og Ingvar Þóroddsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Halla Hrund Logadóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.
Alþingi, 22. október 2026.
| Lilja Rafney Magnúsdóttir, form. |
Eiríkur Björn Björgvinsson, frsm. |
Árni Helgason. |
| Bergþór Ólason. | Eydís Ásbjörnsdóttir. | Ingvar Þóroddsson. |
| Jón Gunnarsson. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Sigurjón Þórðarson. |