Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 309  —  176. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um fjarskiptakerfi.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi nýta ráðuneytið og stofnanir þess í fjarskiptum sínum? Svar óskast sundurliðað eftir framleiðanda og stofnun.

    Utanríkisráðuneytið og sendiskrifstofur þess hagnýta hin ýmsu farsíma- og gagnaflutningskerfi í starfsemi sinni. Hluti af þessari starfsemi fer fram í erlendum ríkjum þar sem huga þarf vel að allri öryggisumgjörð. Þá er utanríkisráðuneytið sökum þjóðréttarlegra skuldbindinga, einkum á sviði öryggis- og varnarmála, bundið ríkri trúnaðarskyldu um eðli og gerð fjarskiptakerfa sem það nýtir. Sökum þjóðaröryggis, trúnaðar- og netöryggissjónarmiða er ekki hægt að sundurliða sérstaklega hvaða framleiðendur er um að ræða.
    Upplýsingar um það hvaða upplýsinga- og fjarskiptakerfi ráðuneyti og stofnanir nota í daglegum rekstri eru viðkvæmar út frá netöryggissjónarmiðum, jafnvel þótt upplýsingagjöf um stakt slíkt atriði geti virst hættulaus ein og sér. Slíkar upplýsingar gera ógnaraðilum kleift að kortleggja tækniumhverfi, sem er jafnan fyrsta skref skipulagðra netárása.
    Þegar vitað er hvaða kerfi eða útgáfur eru í notkun má tengja þau beint við þekkta veikleika og bregðast hratt við nýjum veikleikum, jafnvel áður en tekist hefur að verja og uppfæra kerfin. Slík vitneskja auðveldar einnig mjög hnitmiðaðar vefveiðar, þar sem árásaraðili getur líkt trúverðuglega eftir kerfum og birgjum sem starfsfólk þekkir. Því er mælt með að slíkar upplýsingar séu einungis veittar þeim sem þurfa á þeim að halda vegna starfa sinna.