Ferill 279. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 311  —  279. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um heimild eldri borgara til að taka á móti einstaklingi í vistráðningu.


Flm.: Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra, í samráði við félags- og húsnæðismálaráðherra, að leggja fyrir Alþingi eigi síðar en 1. mars 2027 frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, um dvalarleyfi vegna vistráðningar, þannig að:
     1.      Heimilt verði að veita dvalarleyfi vegna vistráðningar þegar vistfjölskylda er einstaklingur, 67 ára eða eldri, eða hjón eða sambúðarfólk þar sem annað er 67 ára eða eldra, sem býr á eigin heimili, án þess að skilyrði um barn á heimili eigi við.
     2.      Hlutverk hins vistráðna hjá eldri borgara verði félagsskapur, samvera og létt aðstoð við heimilishald, en skýrt verði kveðið á um að hjúkrun, persónuleg umönnun, aðstoð við persónulegt hreinlæti, lyfjagjöf og eftirlit með lyfjatöku falli utan vistráðningar.
     3.      Hámark vinnuframlags hjá eldri borgurum verði ákveðið sérstaklega og verði ekki hærra en það sem gildir um vistráðningu hjá barnafjölskyldum.
     4.      Skyldur vistfjölskyldu, svo sem um húsnæði, fæði, vasapeninga og tryggingar, verði hinar sömu og gilda um aðrar vistfjölskyldur.
     5.      Eftirlit með vistráðningum, sem Útlendingastofnun er nú skylt að fela sérstökum eftirlitsaðila skv. 8. mgr. 68. gr. laganna, taki til beggja aðila og verði hrint í framkvæmd samhliða breytingunni.
     6.      Heimild haldist til að veita ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins dvalarleyfi vegna vistráðningar.

Greinargerð.

Markmið og meginefni.
    Markmið tillögunnar er að eldri borgarar geti, rétt eins og barnafjölskyldur, tekið á móti ungu fólki í vistráðningu. Vistráðningin felur í sér félagsskap og létta aðstoð, ekki umönnun.
    Með þessu er brugðist við tvenns konar vanda samtímis, annars vegar einmanaleika og félagslegri einangrun eldra fólks og þörf þess fyrir létta aðstoð til að geta búið lengur heima og hins vegar þeim tilgangi vistráðningar að gefa ungu fólki tækifæri til að kynnast íslensku samfélagi, menningu og tungumáli eins og ungu íslensku fólki gefst kostur á víða um heim.
    Þjóðin eldist hratt. Samkvæmt nýjustu mannfjöldaspá Hagstofu Íslands, frá október 2025, verður fólk eldra en 65 ára fleira en fólk yngra en 20 ára eftir árið 2052. Í eldri spá Hagstofunnar var gert ráð fyrir að fólki 67 ára og eldra fjölgaði úr um 54 þúsundum árið 2025 í um 96 þúsund árið 2050, eða um nærri 80%. Eftirspurn eftir t.d. heimaþjónustu, dagdvöl og hjúkrunarrýmum vex að sama skapi.
    Eldra fólk sem fær félagsskap og létta aðstoð heima fyrir getur búið lengur á eigin heimili. Það er í samræmi við óskir flestra og getur seinkað þörf fyrir dýrari úrræði. Tillagan getur því létt á velferðarkerfinu án beinna útgjalda ríkissjóðs, enda ber vistfjölskyldan kostnað af dvölinni og eftirlitið má fjármagna með gjöldum.
    Vistráðning eykur ekki eftirspurn eftir húsnæði. Hinn vistráðni býr á heimili vistfjölskyldunnar, oft í herbergi sem annars stæði autt, og vistfjölskyldan sér honum fyrir fæði og vasapeningum. Hann er því hvorki á leigumarkaði né á framfæri ríkis eða sveitarfélags.
    Dvölin er jafnframt tímabundin. Skv. 4. mgr. 68. gr. laga um útlendinga skal hafna umsókn ef líklegt er talið að umsækjandi yfirgefi ekki landið þegar leyfið rennur út. Leyfið getur ekki orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis, sbr. 9. mgr. sömu greinar. Þá getur sá sem dvelst hér vegna vistráðningar ekki sótt um dvalarleyfi á nýjum grundvelli og dvalist hér á meðan umsóknin er afgreidd, sbr. 5. mgr. 57. gr. laganna.
    Úrræðinu er ekki ætlað að koma í stað heimaþjónustu, heimahjúkrunar eða annarrar opinberrar þjónustu við eldra fólk. Það er viðbót sem byggist á léttri heimilishjálp, samveru og gagnkvæmum menningarskiptum.

Gildandi réttur og frumvarpsdrög um brottfall vistráðningar.
    Samkvæmt 68. gr. laga um útlendinga er dvalarleyfi vegna vistráðningar ætlað fólki á aldrinum 18–25 ára. Vistfjölskylda þarf að vera hjón eða sambúðarfólk með barn eða börn, eða einstætt foreldri með barn. Barnlausir einstaklingar, þar á meðal eldri borgarar sem búa einir, geta því ekki tekið á móti einstaklingi í vistráðningu.
    Vinnuframlag má mest vera 30 klukkustundir á viku og felst í að passa barn/börn og léttum heimilisstörfum. Samkvæmt skilmálum Útlendingastofnunar á hinn vistráðni ekki að annast langveik börn eða aðra sem þurfa sambærilega umönnun. Synja skal um leyfi ef rökstuddur grunur er um misnotkun.
    Frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga (944. mál á 153. löggjafarþingi) var í meðförum Alþingis breytt þannig að Útlendingastofnun varð skylt, en ekki aðeins heimilt, að fela sérstökum eftirlitsaðila eftirlit með vistráðningum. Í febrúar 2024 upplýsti ráðherra að unnið væri að fjármögnun eftirlitsins, m.a. með umsóknargjöldum. Eftirlitinu hefur ekki verið komið á.
    Í samráðsgátt stjórnvalda (mál S-189/2026) liggja nú fyrir drög dómsmálaráðherra að frumvarpi sem fellir brott dvalarleyfi vegna vistráðningar fyrir ríkisborgara utan EES. Í drögunum er það m.a. rökstutt með því að eftirlit sé ekki fyrir hendi og ekki talið raunhæft að koma því á.
    Flutningsmenn telja rétt að framfylgja því eftirliti sem Alþingi hefur þegar lögfest og nýta úrræðið víðar, í stað þess að fella það niður. Ríkisborgarar EES þurfa ekki dvalarleyfi til vistráðningar, svo brottfallið næði til allra annarra, m.a. ungs fólks frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada. Þá hefur fjöldi umsagna í samráðsgátt gagnrýnt að engin gögn um umfang misnotkunar fylgi drögunum.

Erlendar fyrirmyndir.
    Í nokkrum nágrannaríkjum býr ungt fólk hjá eldra fólki gegn félagsskap og léttri aðstoð. Frakkland hefur skýrustu umgjörðina: sérstakt lögbundið samningsform, cohabitation intergénérationnelle solidaire, fyrir sambýli einstaklings 60 ára eða eldri og einstaklings yngri en 30 ára.


Land Fyrirkomulag Framlag yngri aðila Útilokað
Frakkland Lögbundið samningsform, utan húsaleigu- og vinnulöggjafar Hóflegt gjald og létt aðstoð eftir samkomulagi Hjúkrun, persónulegt hreinlæti, lyfjagjöf
Bretland Homeshare UK, landsnet þjónustuaðila Um 10 klst. á viku í stað leigu Persónuleg umönnun
Írland THE HomeShare, stutt af Dublinarborg Um 10 klst. á viku og viðvera 5–6 nætur Persónuleg umönnun
Belgía 1Toit2Ages, einstaklingar 50+ og námsmenn 18–28 ára 200–250 evrur á mánuði og um 5 klst. á viku Böðun, aðstoð við að klæða sig, lyfjagjöf
Þýskaland Wohnen für Hilfe í háskólaborgum Um 1 klst. á mánuði fyrir hvern fermetra herbergis sem leigt er Hjúkrun og læknisþjónusta

    Þessi úrræði eru byggð upp sem húsnæðisúrræði en ekki sem vistráðning eða grundvöllur dvalarleyfis. Það sem þau eiga sameiginlegt, og tillagan byggist á, er skýr afmörkun milli samveru og léttrar aðstoðar annars vegar og faglegrar umönnunar hins vegar.
    Á árunum 2018–2020 bauð Reykjavíkurborg háskólanemum að leigja þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk gegn vinnu við félagsstarf. Verkefnið var smátt í sniðum og ekki fundust upplýsingar um framhald þess eftir árið 2020.

Samvera og létt aðstoð, ekki umönnun.
    Vistráðning hjá eldri borgara á að snúast um samveru og að létta undir í daglegu lífi. Hún er ekki hjúkrunarstarf. Sú meginregla gildir nú þegar um vistráðningu, því samkvæmt skilmálum Útlendingastofnunar á hinn vistráðni ekki að annast langveik börn eða aðra sem þurfa sambærilega umönnun.
    Til léttrar aðstoðar getur m.a. talist:
     –      Félagsskapur, samtöl og sameiginlegar máltíðir.
     –      Innkaup og að bera heim vörur.
     –      Létt þrif og aðstoð við matseld.
     –      Garðvinna og snjómokstur.
     –      Aðstoð við síma og tölvur.
     –      Fylgd í gönguferðir eða á viðburði.
    Utan vistráðningar falla m.a. hjúkrun, aðstoð við böðun, salernisferðir og að klæða sig, lyfjagjöf, eftirlit með lyfjatöku og hjálp við fjármál. Þá á hinn vistráðni hvorki að hafa aðgang að fjármálum hins eldri borgara né umboð fyrir hans hönd.
    Þurfi eldri borgari á umönnun af þessu tagi að halda á hún að koma frá heimaþjónustu, heimahjúkrun eða öðrum fagaðilum. Vistráðning skal ekki skerða rétt eldri borgara til slíkrar þjónustu.

Eftirlit og vernd beggja aðila.
    Bæði hinn vistráðni og eldri borgarinn geta verið í viðkvæmri stöðu, rétt eins og börn á heimilum vistfjölskyldna. Eftirlitið sem Alþingi lögfesti árið 2023 þarf því að ná til beggja.
Eftirlitið má fjármagna að hluta eða öllu leyti með gjaldi á vistfjölskyldur, eins og ráðherra nefndi sjálfur árið 2024.

Lokaorð.
    Vistráðning hefur reynst mörgum fjölskyldum vel og gefið ungu fólki tækifæri til að kynnast Íslandi. Flutningsmenn telja að svarið við hættu á misnotkun sé að framfylgja þeim lögum sem þegar gilda, ekki að loka leiðinni. Með því að opna vistráðningu fyrir eldri borgurum, með skýrri afmörkun frá umönnun og eftirliti með báðum aðilum, má jafnframt draga úr álagi sem oft lendir á maka ef um er að ræða heimili hjóna draga úr einmanaleika eldra fólks og styðja það til að búa lengur heima.