Ferill 158. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 313  —  158. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) og nr. 287/2026 um breytingar á bókun 10 um að einfalda skoðun og formsatriði vegna vöruflutninga og bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins við EES-samninginn.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá utanríkisráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2026 frá 25. september 2026 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/956 frá 10. maí 2023 um að koma á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis.
                  b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/2083 frá 8. október 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/956 að því er varðar að einfalda og styrkja aðlögunarkerfið við landamæri vegna kolefnis.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 287/2026 frá 25. september 2026 um breytingu á bókun 10 við EES-samninginn um að einfalda skoðun og formsatriði vegna vöruflutninga og bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins.
    Framsetning tillögunnar telst að mati meiri hlutans vera í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Diljá Mist Einarsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 22. október 2026.

Sigurður Helgi Pálmason,
1. varaform.
Dagbjört Hákonardóttir, frsm. Pawel Bartoszek.
Valdimar Breiðfjörð Birgisson.     Víðir Reynisson.