Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 315 — 282. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (vændiskaup).
Frá dómsmálaráðherra.
1. gr.
a. Á eftir orðunum „fyrir vændi“ í 1. mgr. kemur: handa sjálfum sér eða öðrum.
b. Orðin „sektum eða“ í 1. mgr. falla brott.
c. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sömu refsingu varðar að þiggja vændi sem annar maður greiðir eða heitir greiðslu eða öðru endurgjaldi fyrir.
d. 2. mgr. orðast svo:
Brot skv. 1. mgr. sem beinast gegn barni yngra en 18 ára varða fangelsisrefsingu allt að 4 árum. Hafi brot verið framið í gáleysi um aldur barns skal beita vægari refsingu að tiltölu.
2. gr.
Greinargerð.
Að beiðni og í samvinnu við dómsmálaráðuneytið hefur refsiréttarnefnd unnið frumvarp þetta. Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að brot skv. 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, varði að lágmarki fangelsi en ekki sekt. Í öðru lagi verði kveðið á um að ekki skipti máli þótt annar maður greiði eða heiti endurgjaldi fyrir vændi en sá sem það þiggur. Í þriðja lagi er lagt til að þyngja hámarksrefsingu vegna brota sem beinast gegn börnum úr 2 ára fangelsi í 4 ára fangelsi. Í fjórða lagi að saknæmisstig vegna brota gegn 2. mgr. 206. gr. verði bæði ásetningur og gáleysi að því er varðar aldur barns.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
2.1. Almennt um tilefnið.
Ákvæði 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, bættust við lögin með breytingalögum nr. 54/2009. Með breytingunni var farið að fyrirmynd Svía um að gera kaup á vændi refsiverð. Tilgangurinn var m.a. að draga úr eftirspurn eftir vændi. Ekki hefur þó tekist að uppræta vændi hér á landi. Lögreglan telur að það sé að mestu drifið áfram af skipulagðri glæpastarfsemi. Grunur er um að stór hluti kvenna sem eru í vændi séu þolendur mansals.
Samkvæmt gildandi lögum varða kaup á vændi sektum eða fangelsi allt að 1 ári í tilviki fullorðinna vændisseljanda, sbr. 1. mgr. 206. gr., og sektum eða fangelsi allt að 2 árum þegar keypt er vændi af barni undir 18 ára aldri, sbr. 2. mgr. Í framkvæmd leiða fyrstu brot gegn 1. mgr. 206. gr. til 200.000 kr. lögreglustjórasektar, sbr. fyrirmæli ríkissaksóknara nr. 1/2025 um brot sem ljúka má með lögreglustjórasekt. Fyrirmæli ríkissaksóknara byggjast á reglugerð nr. 205/2009 um lögreglustjórasektir, sbr. XXIII. kafla laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, um lok máls án ákæru. Það að vændiskaup varði að jafnaði sektum í framkvæmd nema um ítrekuð brot sé að ræða dregur úr varnaðaráhrifum 1. mgr. 206. gr. Af því tilefni þykir ástæða til að afnema sektir sem refsingu við vændiskaupum. Þar sem brot gegn 1. mgr. 206. gr. munu varða fangelsisrefsingu verður ekki lengur heimilt að ljúka málum með lögreglustjórasekt heldur munu þau leiða til útgáfu ákæru og dómsmáls. Sambærilegar breytingar voru gerðar á sænsku hegningarlögunum árið 2025.
Í ljósi mikilvægis skýrleika refsiheimilda verður tekið af skarið um að ekki skipti máli þótt annar maður greiði eða heiti greiðslu eða öðru endurgjaldi fyrir vændi en sá sem þiggur það, líkt og í sænskri og norskri löggjöf. Öðrum breytingum, þ.e. að þyngja hámarksrefsingu 2. mgr. 206. gr. og að gáleysi um aldur barns uppfylli saknæmisskilyrði, er ætlað að veita börnum aukna refsivernd og draga úr eftirspurn eftir mansali og kynferðislegri hagnýtingu barna.
Markmið með framangreindum breytingum eru að draga úr eftirspurn eftir vændi, þar á meðal barnavændi, draga úr mansali í kynferðislegum tilgangi og taka fast á skipulagðri glæpastarfsemi og kynferðisbrotum. Almenn og sérstök varnaðaráhrif refsinga verða að vera nægileg til að draga úr eftirspurn eftir vændi.
2.2. Alþjóðlegar skuldbindingar.
Markmiðið með breytingunum er í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar í tengslum við vændi og mansal í samningum sem Ísland hefur fullgilt. Í 6. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum frá 18. desember 1979, sem fullgiltur var af hálfu Íslands 1985, segir að aðildarríki skuli gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal með lagasetningu, til að hamla gegn hvers konar verslun með konur og gróðastarfsemi tengdri vændi kvenna. Fjallað er nánar um skyldur ríkja samkvæmt ákvæðinu í almennum tilmælum nefndar um afnám allrar mismununar gagnvart konum nr. 38 frá 20. nóvember 2020 um mansal kvenna og stúlkna í tengslum við alþjóðlega fólksflutninga. Þar kemur m.a. fram að mansal og kynferðisleg hagnýting kvenna og stúlkna verði ekki upprætt nema eftirspurn verði upprætt. Þrálátar staðalímyndir um yfirráð karla, kynferðislegt tilkall þeirra og valdbeitingu knýi áfram eftirspurn sem aftur knýi áfram mansal og kynferðislega hagnýtingu kvenna og stúlkna.
Mansalsbókun við Palermósamninginn, þ.e. bókun frá 15. nóvember 2000 við samning Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri, skipulagðri glæpastarfsemi frá sama degi, sem fullgiltur var árið 2010, er ætlað að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal, einkum kvenna og barna. Auk þess kemur m.a. fram í 6. gr. Evrópuráðssamnings um aðgerðir gegn mansali frá 16. maí 2005, sem fullgiltur var árið 2012, að hver samningsaðili skuli leitast við að draga úr eftirspurn sem stuðli að hvers kyns misneytingu, einkum kvenna og barna, sem leiði til mansals með því að efla aðgerðir á sviði löggjafar.
Samkvæmt 34. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins frá 20. nóvember 1989, sem var lögfestur hér á landi með lögum nr. 19/2013, eru aðildarríki skuldbundin til að vernda börn fyrir hvers kyns kynferðislegri notkun eða misnotkun í kynferðislegum tilgangi. Í þeim tilgangi skuli þau einkum gera allt sem við á, bæði innan lands og með tvíhliða og marghliða ráðstöfunum, til að koma í veg fyrir að börn séu notuð til vændis eða annarra ólögmætra kynferðisathafna, sbr. b-lið. Jafnframt var lögfest valfrjáls bókun frá 25. maí 2000 við samninginn um sölu á börnum, barnavændi og barnaklám. Hún miðar að því að aðildarríki geri frekari ráðstafanir til þess að tryggja vernd barna að þessu leyti.
2.3. Almennt um þau sjónarmið sem búa að baki refsinæmi vændiskaupa.
Með kynferðisbrotum er brotið gegn sjálfsákvörðunarrétti fólks í kynlífi, athafnafrelsi þess og friðhelgi. Í því felst ofbeldi í víðtækri merkingu þess orðs. Ákvæði 1. mgr. 206. gr. lýsir vændiskaup refsiverð án tillits til aðstæðna seljanda og kaupanda þar sem kaup á aðgangi að líkama annarrar manneskju verða ekki réttlætt. Löggjafinn hefur þar lagt til grundvallar að vændi einkennist af verulegu valdaójafnvægi.
Við mat á eðli og grófleika brots ber að líta til þess hve mikið valdaójafnvægið er, þ.e. hve freklega kaupandi notfærir sér yfirburðastöðu sína eða varnarleysi seljanda til að kaupa aðgang að líkama hans í kynferðislegum tilgangi eða hve litlu hann skeytir þar um. Í því sambandi má hafa hliðsjón af sömu atriðum og við mat á kynferðislegri misneytingu skv. 1. mgr. 198. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, aldri, reynslu og hegðun aðila, auk þess hvaða yfirburði kaupandi hefur umfram seljanda.
Í alvarlegustu tilvikum vændis eru seljendur þolendur mansals þar sem líkami viðkomandi er hagnýttur í annars þágu og frjálsræði og helgustu persónuréttindi fyrir borð borin. Mansal varðar allt að 12 ára fangelsi, sbr. 227. gr. a. Í öðrum tilvikum er það einstaklingsins að taka ákvörðun um að selja vændi en þar kann að spila inn í fjárhagsleg, félagsleg, andleg eða líkamleg neyð. Í rannsókn Stígamóta frá 2022 kemur fram að vændi sé neyðarráð kvenna í erfiðri félagslegri stöðu og afleiðingar þess á líkamlega og andlega líðan séu alvarlegar, djúpstæðar og langvarandi. Reynsla Stígamóta er að mörkin á milli vændis og mansals geti verið óljós. Í upphafi kunni sala vændis að vera leið til sjálfstæðis en hafi smám saman alvarleg áhrif á lífsgæði. Aðilar kunni að hagnýta sér stöðu seljanda og bjóða öryggisgæslu, húsnæði eða miðlun með þeim afleiðingum að hann missir ákvarðanavald og sjálfstæði.
Líkt og nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum hefur bent á er eftirspurn eftir vændi og kynferðislegri hagnýtingu kvenna og stúlkna knúin áfram af þrálátum staðalímyndum um yfirráð karla, kynferðislegt tilkall þeirra og valdbeitingu. Vændiskaup endurspegla oft félagslegt og efnahagslegt valdaójafnvægi milli kynja. Kaupendur vændis eru að langmestu leyti karlar en seljendur að verulegu leyti konur.
Þó að vændiskaup séu sjálfstætt brot skv. 1. mgr. 206. gr. kunna atvik að vera þannig að varði við önnur ákvæði kynferðisbrotakaflans. Til að mynda kann 1. mgr. 198. gr. að eiga við þar sem lögð er allt að 3 ára refsing við m.a. því að hafa samræði eða önnur kynferðismök við mann með því að misnota freklega þá aðstöðu sína að hann er honum háður fjárhagslega. Þá kann 194. gr. um nauðgun að eiga við, einkum 1. mgr. ef kaupandi fer út fyrir það samþykki seljanda sem endurgjald kaupanda stendur til eða ef seljandi afturkallar samþykki sitt, og 2. mgr. ef kaupandi notfærir sér að þannig sé ástatt um seljanda að hann geti ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans, svo sem vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu.
Að vinna gegn eftirspurn eftir vændi er einn liður í heildrænni nálgun í baráttu gegn mansali þar sem eftirspurn er frumorsök þess að mansal og kynferðisleg hagnýting þrífst. Fyrsta aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali, fyrir árin 2009–2012, var lögð fyrir Alþingi á sama löggjafarþingi og lög nr. 54/2009 voru samþykkt en meðal aðgerða var að lagt yrði fram frumvarp sem miðaði að því að gera kaup á vændi refsiverð ( þskj. 754, 440. mál á 136. löggjafarþingi 2008–2009). Til hliðsjónar má nefna að nýlega hefur verið mælt fyrir um að það sé sjálfstætt brot að nýta sér þjónustu mansalsþolenda af ásetningi í löggjöf Evrópusambandsins, sbr. 18. gr. a tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2011/36/ESB frá 5. apríl 2011 um forvarnir og baráttu gegn mansali og vernd þolenda, sbr. breytingartilskipun (ESB) 2024/1712 frá 13. júní 2024.
Að lokum er vert að nefna ástæðu fyrir þyngri refsingu skv. 208. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Hafi maður sem sekur er um brot gegn 206. gr. áður verið dæmdur sekur um brot gegn því ákvæði eða til fangelsisrefsingar fyrir auðgunarbrot hefur sá dómur ítrekunaráhrif varðandi refsingu fyrir nýja brotið gegn 206. gr. þannig að þyngja má refsingu um allt að helmingi hennar. Til þess að eldri dómurinn hafi þessi áhrif verður ítrekunarskilyrðum 71. gr. laganna að vera fullnægt.
Núverandi framkvæmd endurspeglar ekki nægilega þá verndarhagsmuni sem búa að baki ákvæðinu. Með frumvarpinu er leitast við að tryggja að refsing fyrir vændiskaup sé betur í samræmi við alvarleika þeirra og stuðli að auknum almennum og sérstökum varnaðaráhrifum. Sjónarmið þessi ættu sömuleiðis að vera til þess fallin að hafa áhrif á ákvörðun refsingar, enda lúta þau að eðli og grófleika brotsins sem og verndarhagsmunum.
2.4. Almennt um sjónarmið þegar brot beinast gegn börnum.
Í 3. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, er kveðið á um að hver sem blekkingum, gjöfum eða á annan hátt tæli barn yngra en 18 ára til samræðis eða annarra kynferðismaka skuli sæta fangelsi allt að 4 árum. Samkvæmt gildandi lögum varðar því brot sem felur í sér að tæla barn til kynmaka að lágmarki fangelsisrefsingu sem getur að hámarki varðað 4 árum. Aftur á móti er lágmarksrefsing fyrir kaup á barnavændi nú sektir og hámarksrefsing 2 ára fangelsi. Háttsemin getur verið jafn alvarleg og að tæla barn til kynmaka þó að meta verði aðstæður allar í einstökum málum. Í öðru tilfellinu kann greiðsla að vera liður í að tæla barn en í hinu er greiðslan beinlínis fyrir kynmökin. Í þessu sambandi verður að hafa í huga þau atriði sem reifuð eru í kafla 2.3 því að þau eiga enn frekar við í tilvikum þar sem brot beinast gegn börnum, enda eru þau eðli málsins samkvæmt varnarlausari en fullorðnir. Að tæla barn til kynmaka kann að fela í sér röð aðgerða yfir lengri tíma gagnvart barni sem er oft í viðkvæmri stöðu gagnvart geranda og felur því að jafnaði í sér alvarlegt brot gegn barninu. Að borga barni beinlínis fyrir kynmök er ekki síður alvarleg háttsemi þar sem gerandi notfærir sér bága stöðu barnsins þó að það sé ekki verknaðarþáttur brotsins.
Sú sérstaka staða getur komið upp að ákærði teflir fram þeirri vörn að t.d. peningar eða gjafir hafi falið í sér greiðslu fyrir barnavændi en ekki verið liður í tæla barnið í þeirri von að það leiði til vægari refsingar. Sjá í þessu sambandi dóm Hæstaréttar Íslands frá 6. febrúar 2024 í máli nr. 712/2013. Af refsiramma gildandi ákvæða kann einnig að leiða að ákært sé aðallega fyrir brot gegn 3. mgr. 202. gr. en til vara fyrir 2. mgr. 206. gr. eða að dómari heimfæri háttsemi aðeins undir síðara ákvæðið séu skilyrði þess fyrra ekki uppfyllt. Sjá í þessu samhengi dóm Hæstaréttar Íslands frá 15. maí 2008 í máli nr. 539/2007. Afleiðingin getur því orðið sú að háttsemi sem verður jafnað við kaup á barnavændi er heimfærð undir 3. mgr. 202. gr. í stað 2. mgr. 206. gr. í þeim tilfellum þegar skilyrði fyrrnefnda ákvæðisins eru uppfyllt, jafnvel þó að endurgjald hafi beinlínis verið fyrir kynmök, enda varðar brot gegn fyrra ákvæðinu þyngri refsingu. Að teknu tilliti til alls þessa þykir rétt að hámark refsingar sé hið sama fyrir brotin. Það kemur í hlut dómara að ákvarða refsingu innan refsirammans að teknu tilliti til margvíslegra og ólíkra aðstæðna sem kunna að vera fyrir hendi þegar brotið er gegn 2. mgr. 206. gr., þar á meðal þeim aðstöðumun og valdaójafnvægi sem hefur verið fyrir hendi, svo sem yfirburðastöðu kaupanda í ljósi aldurs- og þroskamunar. Er þetta liður í að auka refsivernd barna.
3. Meginefni frumvarpsins.
Í frumvarpinu er kveðið á um ferns konar breytingar á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. umfjöllun í kafla 2.1.
Í fyrsta lagi er lagt til að fella brott ákvæði um sektir fyrir vændiskaup. Af því leiðir að lágmarksrefsing verður fangelsi. Í því felst að brot gegn 1. mgr. 206. gr. munu í ríkara mæli leiða til útgáfu ákæru og að lokum dóms. Ekki verður lengur unnt að ljúka mörgum brotum með lögreglustjórasekt eins og nú, en hingað til hefur fjárhæð sektar að auki verið lág.
Í öðru lagi er lagt til að ekki skipti máli þótt annar maður greiði eða heiti endurgjaldi fyrir vændi en sá sem þiggur það. Sambærileg ákvæði eru í norsku og sænsku hegningarlögunum. Þannig varði það refsingu að kaupa vændi handa sjálfum sér eða öðrum sem og að þiggja vændi sem annar maður greiðir fyrir.
Í þriðja lagi er lagt til að þyngja hámarksrefsingu vegna brota skv. 2. mgr. 206. gr., sem beinast gegn barni, úr 2 ára fangelsi í 4 ára fangelsi. Höfð hefur verið hliðsjón af hámarki refsingar sams konar brots í sænsku hegningarlögunum. Ekki þykir þó tilefni til að kveða nánar á um hámark og lágmark innan þess ramma við ólíkar aðstæður, eins og gert er í sænsku lögunum, heldur er það lagt í hendur dómara að ákvarða refsingu innan refsirammans.
Í fjórða lagi er lagt til að gáleysi um aldur barns nægi til að uppfylla saknæmisskilyrði 2. mgr. 206. gr. Með þessu er refsivernd barna aukin. Höfð hefur verið hliðsjón af 204. gr. Þá er einnig almennt ákvæði í sænsku hegningarlögunum um gáleysi um aldur barns í tengslum við kynferðisbrot.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá. Ítarlega er fjallað um alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í kafla 2.2.
5. Samráð.
Áform um lagabreytingar voru birt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 7. júlí 2026 og veittur frestur til að koma umsögnum á framfæri til 19. ágúst (mál nr. S-118/2026). Eftirtöldum aðilum var sérstaklega boðið að veita umsögn: Bjarkarhlíð, Dómstólasýslan, Hennar rödd, Héraðssaksóknari, Kvenréttindafélag Íslands, Lögmannafélag Íslands, lögregluembættin, Mannréttindastofnun Íslands, ríkislögreglustjóri, ríkissaksóknari, Rótin, Samtök um kvennaathvarf, Stígamót, Tabú, UN Women og W.O.M.E.N. in Iceland, samtök kvenna af erlendum uppruna. Alls bárust 36 umsagnir um áformin, frá Bjarkarhlíð, European Sex Workers Rights Alliance, Heimssambandi verkafólks á Íslandi, HIV Íslandi, Kvenréttindafélagi Íslands, Mannréttindastofnun Íslands, Rauðu regnhlífinni Íslandi, Rótinni, Stígamótum, Stop the Traffik Iceland, Trans Íslandi, Vitund – samtökum gegn kynbundnu ofbeldi og 24 einstaklingum.
Enginn umsagnaraðila lagðist gegn endurskoðun refsiramma 2. mgr. 206. gr. hvað varðar brot sem beinast gegn börnum. Í umsögnum var ýmist lýst almennri ánægju með áformin eða þeirri skoðun að fella ætti ákvæði 1. mgr. 206. gr. brott. Þar vegast á annars vegar sjónarmiðið um að þyngri viðurlög geti dregið úr eftirspurn eftir vændi og aukið varnaðaráhrif ákvæðisins og hins vegar að þyngri viðurlög gagnvart kaupendum geti haft neikvæð áhrif á öryggi og stöðu vændisseljenda. Í mörgum umsögnum var jafnframt hvatt til frekari aðgerða gegn mansali á fleiri sviðum og aukins samráðs við þá hópa sem breytingarnar varða. Þau sjónarmið eru tekin til greina en kalla ekki á nánari umfjöllun hér.
Drög að frumvarpi voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 18. september 2026 og var umsagnarfrestur til 3. október (mál nr. S-177/2026). Alls bárust 11 umsagnir, frá Bjarkarhlíð, Kvenréttindafélagi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp, Mannréttindastofnun Íslands, Rauðu regnhlífinni Íslandi, Rótinni, Stígamótum, Stop the Traffik Iceland, Vitund – samtökum gegn kynbundnu ofbeldi og tveimur einstaklingum.
Að því er varðar fyrirhugaðar breytingar á 1. mgr. 206. gr. voru að mestu ítrekuð þau sjónarmið sem fram höfðu komið í umsögnum um áformin. Þá var sérstaklega tekið undir þá breytingu að gáleysi um aldur barns uppfyllti saknæmisskilyrði 2. mgr. 206. gr.
Við undirbúning frumvarpsins var leitast við að taka tillit til ýmissa ábendinga sem komu fram í samráði. Til að mynda hefur verið skerpt á orðalagi með hliðsjón af þeim ólíku hópum sem 1. mgr. 206. gr. er ætlað að vernda.
6. Mat á áhrifum.
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum sem ætlað er að draga úr eftirspurn eftir vændi og þar með sporna gegn mansali og annarri skipulagðri brotastarfsemi. Jafnframt er frumvarpinu ætlað að styrkja refsivernd einstaklinga sem verða fyrir vændi eða vændismansali og endurspegla þá afstöðu löggjafans að ekki sé ásættanlegt að líta á manneskjur sem söluvöru.
Ekki verður séð að lögfesting frumvarpsins hafi í för með sér sérstök útgjöld fyrir ríkissjóð en auknu fjármagni hefur verið varið til lögreglunnar á undanförnum árum vegna skipulagðrar brotastarfsemi, þar á meðal vændis og mansals.
Af útgefinni tölfræði lögreglu, Bjarkarhlíðar og Stígamóta má ráða að meiri hluti þolenda vændis og vændismansals á Íslandi séu konur. Í mansalsskýrslum Bjarkarhlíðar, sem gefnar hafa verið út fyrir árin 2024 og 2025, er að finna ýmsar upplýsingar um þolendur vændismansals sem leitað hafa til miðstöðvarinnar. Þar kemur fram að þolendur búi við ýmiss konar jaðarsetningu.
Frumvarpinu er ætlað að stuðla að jafnrétti kynjanna. Í samráðsferlinu komu fram sjónarmið þess efnis að breytingarnar kynnu að bitna hvað verst á jaðarsettum hópum og myndu jafnvel auka það misrétti sem þegar er fyrir hendi. Því verður rík áhersla lögð á að fylgjast með áhrifum lagabreytinganna. Í því skyni verður tölfræði safnað reglubundið hjá lögreglu, Bjarkarhlíð og Stígamótum, auk þess sem samráð verður aukið við samtök sem starfa með þeim einstaklingum sem breytingarnar varða.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Breytingarnar fela í öðru lagi í sér að ekki verður lengur unnt að sekta fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 206. gr. Þess í stað munu brotin varða fangelsisrefsingu. Af því leiðir að ekki verður lengur heimilt að ljúka máli vegna brots gegn 1. mgr. 206. gr. með lögreglustjórasekt. Breytingunni er ætlað að treysta almenn og sérstök varnaðaráhrif og tryggja að refsing fyrir vændiskaup sé í samræmi við alvarleika þeirra. Af 1. mgr. 31. gr. laganna leiðir að lágmarksrefsing verður fangelsisvist í 30 daga. Í því sambandi verður þó að hafa í huga heimildir skv. VI. kafla laganna til að skilorðsbinda dóm, en þegar sú leið er farin er frestun á t.d. fullnustu refsingar bundin því skilyrði að aðili gerist ekki á ný sekur um brot á skilorðstímanum, sbr. 3. mgr. 57. gr. Að því er varðar málsmeðferðina eru sérstakar reglur í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, fyrir þau tilvik þegar ákærði játar skýlaust alla þá háttsemi sem honum er gefin að sök og dómari telur ekki ástæðu til að draga í efa að játningin sé sannleikanum samkvæm, sbr. 164. gr. Við mat á alvarleika brots við ákvörðun refsingar innan refsirammans verður að líta til þeirra sjónarmiða sem búa að baki refsinæmi vændiskaupa en gerð er nánari grein fyrir þeim í kafla 2.3.
Í þriðja lagi er kveðið á um þyngri hámarksrefsingu úr 2 ára fangelsi í 4 ár við brotum gegn 2. mgr. 206. gr. Með breytingunni er alvarleiki brotsins undirstrikaður. Þar sem refsirammi 2. mgr. 206. gr. og 3. mgr. 202. gr. verður hinn sami ætti ekki að skipta jafn miklu máli og áður hvort brot sé heimfært til fyrra eða síðara ákvæðisins. Þá verður refsiramminn nægilega rúmur til að taka tillit til margvíslegra og ólíkra aðstæðna. Þegar peningar eða annars konar greiðslur eru liður í að tæla barn til kynmaka, án þess að þær séu beinlínis endurgjald fyrir kynmök, varðar háttsemi að jafnaði við 3. mgr. 202. gr. að öðrum skilyrðum uppfylltum. Þegar greiðsla er beinlínis endurgjald fyrir kynmök varðar háttsemin að jafnaði við 2. mgr. 206. gr. að öðrum skilyrðum uppfylltum. Við ákvörðun refsingar er hægt að taka tillit til grófleika brots og allra aðstæðna, m.a. hvort gerandi hafi notfært sér bágar aðstæður barnsins eða yfirburðastöðu sína gagnvart því, sem og aldur og þroska barns og geranda. Sjá til hliðsjónar dóm Hæstaréttar Íslands frá 24. október í máli nr. 586/2012. Þegar barn er undir 15 ára aldri varðar háttsemi jafnframt við 1. mgr. 202. gr. Enn fremur geta aðstæður verið með þeim hætti að skilyrðum 194. gr. um nauðgun er fullnægt.
Í fjórða lagi mun 2. mgr. 206. gr. ná til þeirra brota þar sem kaupandi eða þiggjandi vændis fremur brot í gáleysi um aldur þess barns sem um ræðir. Af 18. gr. laganna leiðir að ásetningur verður að ná til allra verknaðarþátta brota í lögunum nema þar sé kveðið á um annað. Meðal verknaðarþátta 2. mgr. 206. gr. er að barn sé undir 18 ára aldri. Samkvæmt gildandi lögum verður vændiskaupandi að hafa vitneskju um, þ.e. hafa ásetning til þess, að vændi sé keypt af barni undir 18 ára aldri svo að brot verði heimfært undir 2. mgr. 206. gr. Sé vændiskaupanda ekki kunnugt um að vændisseljandi sé barn undir 18 ára aldri er þó unnt að refsa fyrir brot gegn 1. mgr. 206. gr. að öðrum skilyrðum uppfylltum og eftir atvikum 3. mgr. 202. gr. séu aðstæður þannig að skilyrði þess ákvæðis séu uppfyllt. Með frumvarpsákvæði þessu er lagt til að breyta saknæmisskilyrðinu á þann hátt að það teljist jafnframt brot gegn 2. mgr. 206. þegar kaupandi eða þiggjandi vændis fremur brot í gáleysi um aldur barns og beri að taka tillit til þess við ákvörðun refsingar. Í þessu sambandi hefur verið höfð hliðsjón af 204. gr. Ákvæðið nær bæði til gáleysis þess sem þiggur vændi sem og þess sem greiðir eða heitir greiðslu eða öðru endurgjaldi fyrir vændi handa sjálfum sér eða öðrum.
Um 2. gr.